Fasteignaleitin
Skráð 23. feb. 2024
Deila eign
Deila

Bjargsskarð 3

HæðHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
138 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
115.000.000 kr.
Fermetraverð
833.333 kr./m2
Fasteignamat
6.570.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Salvör Þóra Davíðsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali
Byggt 2023
Þvottahús
Geymsla 5.6m2
Garður
Útsýni
Sérinng.
Fasteignanúmer
2527574
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýjar
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sérafnotaflötur út frá borðstofu
Upphitun
Hitaveita, gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
3 - Burðarvirki fullreist
Matsstig
3 - Risin bygging
Kvöð / kvaðir
Þinglýst skjal 441-A-000341/2022 (sjá lóðaleigusamning). Þinglýst skjal 441-F-002781/2022 (Óheimilt að veðsetja öðrum en Arion banka eignina nema fyrir liggi skriflegt samþykki bankans).
RE/MAX & Salvör Davíðs, lgf & Gunnar Sverrir, lgf kynna í einkasöluSérhæðir með sérbýlis eiginleika - BÓKIÐ SKOÐUN
Vel skipulögð, flott og vönduð 4-5 herbergja 138,0 fm. íbúð á jarðhæð í vönduðum 4 íbúða kjarna við Bjargsskarð 3, 221 Hafnarfjörður. Íbúðin er einstaklega skemmtileg með viðhaldsléttu ytra byrði, sérinngangi, aukinni lofthæð, flottu og góðu útsýni, gluggum á 4 vegu, 2 baðherbergjum, sérafnotaflötur í suður og vestur og sér bílastæði.
*** Allar nánari upplýsingar veitir: - Haukur, lgf. í 699-2900 eða haukur@remax.is ***

SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDIS

Kíktu í heimsókn í sýningaríbúðir í Bjargsskarði 3 - skoðaðu þær í 3-D, þrívíðu umhverfi.
SMELLTU HÉR - 3JA HERB - NEÐRI HÆÐ
SMELLTU HÉR - 4RA HERB - EFRI HÆÐ


Steinn á borði, gólfhiti, aukin lofthæð, hljóðdúkur í loftum, HTH innréttingar, eldhústæki og búnaður frá AEG, innfelld blöndunartæki í sturtu, sérinngangur og húsin klædd með Dekton frá Cosentino sem tryggir lágmarksviðhald húsanna. 

Sér bílastæði með möguleika á rafhleðslustöð fylgir íbúðinni ásamt sér geymslu (5,3 fm) í sameign merkt 01-0103. Samtals heildarstærð á íbúð og geymslu er 138,0 fm.

Íbúðin skilast án gólfefna að undanskildum votrýmum sem verða með flísum á gólfum og veggir verða flísalagðir að hluta þar sem við á.

Um er að ræða vandaðar og vel skipulagðar íbúðir í Skarðshlíð sem er fjölskylduvænt íbúðahverfi í Hafnarfirði sem liggur á flata og í brekku sunnan og vestan í Ásfjalli. Við hönnun og skipulag hverfisins var áhersla lögð á heildræna sýn, heildrænar götumyndir, vistvænt skipulag, sjálfbærni, grænt yfirbragð og fjölbreytt útisvæði. Stutt er í alla þjónustu, möguleikar á að starfa í heimabyggð miklir og mikil nálægð við uppland Hafnarfjarðar og fallegar náttúruperlur.

Sjá má skilalýsingu hér fyrir neðan og með því að smella hér eða hafa samband í síma 844-1421.
Nánari upplýsingar inni á heimasíðu verkefnisins: sudurhaedir.is/bjargsskard

============================================
Allar nánari upplýsingar veita:
   Haukur, lgf. í 699-2900 eða haukur@remax.is
   Gunnar Sverrir, lgf. í 862-2001 eða gunnar@remax.is
============================================

Sérhæð með sérbýlis eiginleika  - SÝNUM DAGLEGA !
Sérlega falleg og vönduð 4-5 herbergja 138,0 fm íbúð í vönduðum 4 íbúða kjarna að Bjargsskarði 3, 221 Hafnarfjörður - í Skarðshlíð.
  - Sér inngangur
  - Aukin lofthæð
  - Sérafnotaflötur í suður og vestur
  - Sér bílastæði
  - Viðhaldslétt ytra byrði (Utanhúss klæðning er Dekton frá Cosentino)
  - Einungis 4 íbúðir í húsinu
  - Fallegt útsýni

Nánar um eign - Bjargsskarð 3, íbúð 01-0102:
Eignin er 4-5 herbergja íbúð á einni hæð í matshluta 1, merkt 0102. Eigninni tilheyrir sérafnotaflötur. Birt stærð eignar er 138,0 fm, þar af er íbúðarhlutinn 132,7 fm og sér geymsla 5,3 fm utan íbúðar í matshluta 1 merkt 01-0103. Sameiginleg hjólageymsla er í matshluta 1, merkt 01-0105.
Eignin samanstendur af 3 svefnherbergjum, sjónvarpsstofu, eldhúsi, borðstofu, stofu, baðherbergi, gestasnyrtingu, anddyri, þvottahúsi, sér geymslu utan íbúðar og sérafnotafleti.

Íbúðirnar verða tilbúnar til afhendingar í desember 2023 og skilast fullbúnar með HTH innréttingum, stein á borði, hljóðdúk, gólfhita, án gólfefna að undanskildum votrýmum sem verða með flísum á gólfum og veggir verða flísalagðir að hluta þar sem við á og innfelld blöndunartæki í sturtu.​​ Sérafnotafletir eru hellulagðir við afhendingu. Inngangar verða steyptir og/eða hellulagðir. Sameiginleg svæði verða útfærð í samræmi við lóðarhönnun. Þökulögð svæði verða frágengin en gróðurbeð og gróður fylgir ekki.

Allar innréttingar eru frá HTH með ljúflokun á skúffum og skápum. Skápahurðir eru með sléttri áferð, ljósar að lit. Borðplötur eru Silestone frá Cosentino, svartar að lit eða sambærilegt. Eldhúsinnrétting skilast með tækjum og búnaði frá AEG, spanhelluborði og blástursofni. Innbyggt afsog er í helluborðum í eyjum og innbyggð vifta er í eldhúsum sem ekki hafa eyju. Fataskápar eru í sama lit og innréttingar. Innihurðir eru hvítar yfirfelldar.

-----------------------------------------------------
Um byggingaraðilan
Suðurhæðir er metnaðarfullt þróunar- og byggingarfélag sem leggur áherslu á áferðafögur híbýli sniðin að þörfum fólks og fjölskyldu, í sátt við umhverfi og náttúru.
Við sérhæfum okkur í sérbýli, einbýlishúsum, parhúsum, raðhúsum og keðjuhúsum. Oftast einbeitum við okkur að eigin byggingarverkefnum, en bjóðum þó einstaka sinnum upp á sérþróun og sérsmíði einbýlishúsa í verktöku.

Um hönnuði
Húsin eru hönnuð af Smára Björnssyni. Verkfræðistofa Jóns Kristjánssonar ehf. hannaði burðarvirki og lagnir. Brunahönnun ehf. sá um brunahönnun. Víglundur Guðmundsson sá um raflagna- og lýsingarhönnun. Landslag ehf. sá um hönnun lóðar.

Sjá má skilalýsingu hér fyrir neðan og með því að smella hér
Nánari upplýsingar inni á heimasíðu verkefnisins: sudurhaedir.is/bjargsskard


Fjögurra íbúða fjölbýli með sérbýlis eiginleika
- allar með sérinngang og svölum eða sérafnotarétt á lóð.

     --> 192,6 fm íbúð á 2 hæðum - íbúð 01-0101
     --> 138,0 fm íbúð á 1. hæð - íbúð 01-01-02
     -->   99,4 fm íbúð á 1. hæð - íbúð 02-0101
     --> 104,7 fm íbúð á 2. hæð - íbúð 02-0201

Áætlaður afhendingartími eignanna er í desember 2023

============================================
Allar nánari upplýsingar veita:
   Haukur, löggiltur fasteignasali í síma 699-2900 eða á netfangið haukur@remax.is
   Gunnar Sverrir, löggiltur fasteignasali í síma 862-2001 eða á netfangið gunnar@remax.is
============================================

-----------------------------------------------------
SKILALÝSING Bjargsskarð 3
Byggingaraðili: Suðurhæðir ehf.
Seljandi & lóðarhafi: Húshöfði ehf.

 
Suðurhæðir er metnaðarfullt þróunar- og byggingarfélag sem leggur áherslu á áferðafögur híbýli sniðin að þörfum fólks og fjölskyldu, í sátt við umhverfi og náttúru.
 
Við sérhæfum okkur í sérbýli, einbýlishúsum, parhúsum, raðhúsum og keðjuhúsum. Oftast einbeitum við okkur að eigin byggingar verkefnum, en bjóðum þó einstaka sinnum upp á sérþróun og sérsmíði einbýlishúsa í verktöku.
 
Húsin eru hönnuð af Smára Björnssyni. Verkfræðistofa Jóns Kristjánssonar ehf. hannaði burðarvirki og lagnir. Brunahönnun ehf. sá um brunahönnun. Víglundur Guðmundsson sá um raflagna- og lýsingarhönnun. Landslag ehf. sá um hönnun lóðar.
 
Skarðshlíðin er fjölskylduvænt íbúðahverfi í Hafnarfirði sem liggur á flata og í brekku sunnan og vestan í Ásfjalli. Við hönnun og skipulag hverfisins var áhersla lögð á heildræna sýn, heildrænar götumyndir, vistvænt skipulag, sjálfbærni, grænt yfirbragð og fjölbreytt útisvæði. Stutt er í alla þjónustu, möguleikar á að starfa í heimabyggð miklir og mikil nálægð við uppland Hafnarfjarðar og fallegar náttúruperlur.
 
Húsin eru í kjarna þar sem fjögur hús tengjast. Húsin eru byggð í samræmi við nútímaþarfir og kröfur. Allar íbúðir hafa svalir eða séreignafleti. Burðarkerfi hússins er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klæddir með Dekton frá Cosentino sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Þakplötur eru steyptar með einangrun og þéttilagi að ofanverðu. Svalir eru staðsteyptar og frágengnar með timburklæðningu á húsveggi innan svalarýmis. Svalahandrið eru úr stáli. Svalir eru ekki afhentar með svalalokun. Sérnotafletir eru hellulagðir við afhendingu. Sér stæði fylgja íbúðum í samræmi við ákvæði skipulagsskilmála. Séreignageymsla fylgir völdum íbúðum en aðrar hafa geymslu innangengt í íbúðum.
 
Íbúðirnar eru byggðar í samræmi við byggingareglugerð 112/2012 með áorðum breytingum þegar byggingarleyfi var samþykkt. Í sumum tilvikum er vikið frá kröfum um algilda hönnun á þeirri forsendu að hægt sé gera breytingar síðar (ef kaupandi kýs) og uppfylla þannig kröfur þar að lútandi. Slíkar breytingar eru ekki innifaldar eða hluti af skilalýsingu, þær eru á ábyrgð og kostnað íbúðareiganda ef til kæmi.
 
Íbúðum verður skilað fullbúnum án gólfefna nema gólf á baðherbergjum og í þvottahúsum verða flísalögð. Útveggir eru einangraðir og klæddir með flísum eða timbri að utan en sandspartlaðir og málaðir að innan. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslustein. Hljóðdúkur verður í loftum þar sem þau eru niðurtekin, á ekki við um votrými og geymslur. Veggir og loft innan íbúða eru spartlaðir og málaðir í ljósum lit.
 
Pípulagnakerfi hússins (innan íbúða) er leitt í gegnum lóðrétta lagnastokka. Rör í rör kerfi að tengipunktum er innsteypt í gólfplötum. Gólfhitakerfi er í íbúðum, rennsli í hverri gólfhitalögn er stjórnað með mótorlokum sem tengdir eru hitanemum/stillum í hverju rými.
Handklæðaofnar eru á flestum baðherbergjum. Í baðherbergjum, þvottaherbergjum eða forstofu eru í sumum tilfellum lagnastokkar við loft eða í kverkum. Vélræn loftræsting (útsog) er í rýmum skv. hönnunargögnum þar sem við á en annars verður um „náttúrulega“ loftræstingu að ræða (opnanleg fög). Lofttúður í íbúðum eru í gegnum útveggi.
 
Í baðherbergjum, þvottaherbergi og eldhúsi er einn rakaheldur ljósakúpull í hverju rými, í öðrum rýmum eru ljósastæði (án kúpla). Slökkvitæki og reykskynjari fylgir hverri íbúð. Laus búnaður o.þ.h. sem sýndur er á teikningum, en sem ekki er upptalinn í skilalýsingu þessari fylgir ekki. Innihurðir eru vandaðar yfirfeldar og eru hurðastopparar í gólfi eða skellibólur á veggjum eftir því sem best hentar. Lögð er áhersla á að haga skipulagi eldhúsa á sem bestan hátt með nútíma hönnun og þarfir í huga. Innréttingar eru slitsterkar og endingargóðar. Um er að ræða einstaklega vandaða framleiðslu þar sem nýjasta tækni og vöruþróun eru í hávegum höfð. Fittings og fylgihlutir eru einnig af vandaðri gerð.
 
Baðherbergis- og þvottahúsgólf eru flísalögð sem og veggir inni í sturtu en aðrir veggir málaðir í ljósum lit. Salernisskálar eru upphengdar skálar með innbyggðum vatnskassa í vegg. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri þar sem við á. Hreinlætistæki eru hitastýrð eða einnar handar. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.
Þvottahús eru óinnréttuð með tengingu fyrir þvottavél og þurrkara (ekki útsog fyrir þurrkara).Þar sem þvottahús eru í sér rými eru tengingar fyrir skolvask en vaskur fylgir ekki né önnur tæki.
 
Minniháttar misræmi getur verið á milli teikninga arkitekta, söluteikninga og sérteikninga innréttinga og eru innréttingateikningar þá gildandi.
 
Innréttingar í eldhúsi, fataskápar og á baði eru frá HTH. Innréttingarnar eru með ljúflokun á skúffum og skápum. Skápahurðir eru með hvítar eða gráar að lit. Lýsing er undir efriskápum í eldhúsum. Borðplötur eru úr Silestone efni frá Cosentino sem er slitsterkt og endingargott eða sambærilegt.
Eldhúsinnrétting skilast með tækjum og búnaði frá AEG, spanhelluborði, blástursofni innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Háfur eru staðsettir yfir eyju, þar sem á við og innbyggð vifta er í eldhúsum sem ekki hafa eyju. Fataskápar eru ýmist hvítir eða ljósgráir í litaþema íbúðar.
 
Lóðarfrágangur: Húsunum verður skilað fullbúnum með malbikuðum svæðum, hellulögn og túnþökum. Inngangar verða steyptir og/eða hellulagðir. Sameiginleg svæði verða útfærð í samræmi við lóðarhönnun. Þökulögð svæði verða frágengin en gróðurbeð og gróður fylgir ekki.
 
Geymslur: Gólf í séreignageymslum eru slípuð og lökkuð. Steyptir veggir eru ómálaðir og einnig loft.
 
Almennt: Vísað er til hönnunargagna (m.a. byggingarnefndarteikninga) varðandi nákvæmar útfærslur á atriðum sem ekki koma fram í skilalýsingunni. Auglýsingaefni og 3D teikningar eru eingöngu til hliðsjónar og geta breyst á byggingartíma, komi upp misræmi eru samþykktar teikningar hönnuða gildandi. Almennt miðast skil hússins við vandaðan frágang og viðurkennd skil á nýju íbúðarhúsnæði. Komi til framkvæmda kaupenda eftir afhendingu skal tekið fram að ekki er heimilt að skerða burðarþol, hljóðvist o.þ.h. eða hafa áhrif á húshluta sem tilheyra sameign hússins.
 
Í nýjum íbúðum getur verið mikill byggingaraki í byggingarhlutum. Þessi raki mun að jafnaði hverfa á einu til tveimur árum en það er þó algjörlega háð útloftun í íbúðinni. Allar íbúðir eru búnar vélrænni loftræstingu en til þess að hún hafi fulla virkni þarf að tryggja innstreymi lofts öllum stundum, í gegnum lofttúðu og/eða opnanleg fög. Nauðsynlegt er að fylgjast með vatnsmyndun (döggun) innan á gleri. Ef mikil bleyta safnast saman neðst á glerinu getur vatnið skemmt glugga, gólfefni, málningu og spörtlun. Því er mikilvægt að hafa gluggafögin lítillega opin til að tryggja útloftun, sérstaklega þegar tekur að kólna.
 
Kaupandi gæti þurft að hreinsa sigti í blöndunartækjum nokkrum sinnum eftir að flutt er inn í íbúðina og nauðsynlegt er að hann fylgist með niðurföllum í þvottahúsi, baði og á svölum.
Seljandi ber ekki ábyrgð á eðlilegri og venjulegri sprungumyndun í múr, steypu og timbri og/eða atriðum sem heyra undir viðhald hússins.

============================================
Allar nánari upplýsingar veita:
   Haukur, löggiltur fasteignasali í síma 699-2900 eða á netfangið haukur@remax.is
   Gunnar Sverrir, löggiltur fasteignasali í síma 862-2001 eða á netfangið gunnar@remax.is
============================================

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. sjá nánari upplýsingar um gjaldskrá á heimasíðu lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
5.6 m2
Fasteignanúmer
2527574
Númer hæðar
01
Númer eignar
02

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Áshamar (Penthouse) 18
Bílastæði
Áshamar (Penthouse) 18
221 Hafnarfjörður
124.3 m2
Fjölbýlishús
413
853 þ.kr./m2
106.000.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 9-11 íb. 601
Hringhamar 9-11 íb. 601
221 Hafnarfjörður
133.9 m2
Fjölbýlishús
413
888 þ.kr./m2
118.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 48 íb. 501
Áshamar 48 íb. 501
221 Hafnarfjörður
154 m2
Fjölbýlishús
4
779 þ.kr./m2
120.000.000 kr.
Skoða eignina Áshamar (Penthouse) 14
Bílastæði
Áshamar (Penthouse) 14
221 Hafnarfjörður
124.3 m2
Fjölbýlishús
312
833 þ.kr./m2
103.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache