DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 26. sept. 2024

Rögguberg 3

Jörð/LóðSuðurland/Selfoss-806
Verð
Tilboð
Fasteignamat
3.760.000 kr.
Mynd af Dagrún Davíðsdóttir
Dagrún Davíðsdóttir
löggiltur fasteignasali
Fasteignanúmer
2531534
Landnúmer
237143
Húsgerð
Jörð/Lóð
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Gallar
Ekki hafa verið greidd gatnagerðar- né byggingarleyfisgjöld af eigninni
Kvöð / kvaðir
Kaupanda er bent á að kynna sér sérstaklega gildandi fyrirkomulag, úthlutun og skilmála vegna nýtingar veiðiréttindanna.
Rögguberg 3 – gróin eignarlóð ásamt eignarhlutum í landi og veiðiréttindum.
Betri stofan fasteignasala og Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali kynna Rögguberg 3, einstaklega fallega og gróna eignarlóð á landi Bergsstaða, ásamt eignarhlutum í landi Bergsstaða og veiðiréttindum.

Allar nánari upplýsingar í síma 866 1763 eða á dagrun@betristofan.is


Um er að ræða áhugaverða heild fyrir náttúru- og hestaunnendur þar sem saman fara falleg eignarlóð, gróið umhverfi, aðkoma að beitilandi og réttindi tengd veiði í Tungufljóti og Hvítá.

Rögguberg 3 er tæplega 0,9 hektara eignarlóð, skráð 8.758,7 m². Lóðin er falleg og gróin og töluverð skógrækt hefur verið stunduð þar í gegnum tíðina. Ríkulegur trjágróður, sérstaklega greni, setur sterkan svip á umhverfið og veitir bæði skjól og notalega skógarstemningu.

Lóðin stendur á fallegum stað á milli Tungufljóts og Hvítár. Þaðan er fallegt útsýni yfir Bjarnafell og Langjökul og við góð skilyrði má sjá til Strokkar. Stutt er í fjölbreytta þjónustu og afþreyingu og eru meðal annars Gullfoss og Geysir í nágrenninu.

Deiliskipulag er fyrir svæðið. Áhugasömum kaupendum er bent á að kynna sér gildandi deiliskipulag og byggingarheimildir hjá viðkomandi sveitarfélagi.

Kaldavatnslögn er á svæðinu og samkvæmt upplýsingum seljanda er mögulegt að tengja lóðina við hana. Einnig er tiltölulega nýtt sameiginlegt jarðhitakerfi á svæðinu og möguleiki á að kaupa sig inn í það.

Eignarhlutir í landi Bergsstaða

Með Röggubergi 3 fylgja eignarhlutir seljanda í tveimur landspildum Bergsstaða:

Bergsstaðir lóð B1 – L189401 / F2205307
Heildarstærð landsins er 77.000 m² eða 7,7 hektarar og er eignarhlutur seljanda 25%.

Bergsstaðir lóð B3 – L219954 / F2345890
Heildarstærð landsins er 35,2 hektarar og er eignarhlutur seljanda 16,66%.

Löndin hafa meðal annars verið nýtt til hrossabeitar og liggja í tengslum við Röggubergssvæðið. Fleiri hestaeigendur eru á Bergsstöðum og hefur skapast þar fyrirkomulag í kringum beit og hrossahald sem gerir þessa heild sérstaklega áhugaverða fyrir hestafólk.

Hross hafa meðal annars gengið saman á B1 og B3 ásamt landi annarra hestaeigenda á Bergsstöðum og er nægt vatn á beitilandinu. Yfir vetrartímann hefur jafnframt verið nýtt sameiginlegt vetrarhólf gegn gjaldi fyrir hvert hross.

Fyrirkomulag hrossahalds, beitarréttinda, fjölda hrossa og aðgangs að sameiginlegu vetrarhólfi er háð samkomulagi hverju sinni og er kaupanda bent á að staðfesta það sérstaklega.

Veiðiréttindi í Tungufljóti
Með heildinni fylgir einnig 1,666% eignarhlutur seljanda í lax- og silungsveiðiréttindum Bergsstaða, fasteignanúmer F2204327.

Samkvæmt upplýsingum seljanda er veiðin í Tungufljóti leigð út til aðila sem selur veiðileyfi og fá eigendur veiðiréttarins hlutdeild í leigutekjum í samræmi við eignarhlut sinn og gildandi leigusamning.
Þannig fylgir eignarhlutnum lítil árleg tekjulind vegna útleigu veiðiréttindanna.

Veiðiréttindi í Hvítá
Bergsstaðir eru gamalt lögbýli og samkvæmt upplýsingum seljanda tengjast jörðinni jafnframt veiðiréttindi í Hvítá, sem rennur skammt frá Röggubergi og landi Bergsstaða.
Samkvæmt því fyrirkomulagi sem verið hefur fá eigendur/félag Bergsstaða úthlutaða ákveðna veiðidaga. Þar hefur verið hægt að stunda bæði stangveiði og netaveiði á ákveðnum dögum samkvæmt gildandi fyrirkomulagi hverju sinni. Í Hvítá er meðal annars lax og bleikja.

Einstök heild fyrir náttúru- og hestaunnendur
Rögguberg 3 býður því upp á töluvert meira en hefðbundin sumarhúsalóð. Hér sameinast tæplega 9.000 m² gróin eignarlóð með miklum trjágróðri, eignarhlutir í umfangsmiklu landi Bergsstaða, möguleikar tengdir hrossahaldi og beit auk veiðiréttinda í Tungufljóti og Hvítá.

Um er að ræða afar áhugaverða heild fyrir þá sem vilja skapa sér fallegan stað í sveitinni og njóta nálægðar við hestamennsku, veiði og íslenska náttúru – í um klukkustundar akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.

Nánari upplýsingar veitir Dagrún Davíðsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 866 1763 eða á dagrun@betristofan.is.

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (16)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vörðubrekka 1
Skoða eignina Vörðubrekka 1
Vörðubrekka 1
806 Selfoss
Jörð/Lóð
5.900.000 kr.
Skoða eignina Smyrlaheiði 43
Á einni hæð
Skoða eignina Smyrlaheiði 43
Smyrlaheiði 43
810 Hveragerði
114.1 m2
Fjölbýlishús
413
635 þ.kr./m2
72.500.000 kr.
Skoða eignina Núpahraun 26
Bílskúr
Á einni hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Núpahraun 26
Núpahraun 26
815 Þorlákshöfn
148.4 m2
Raðhús
413
606 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Brattahlíð 3A
Bílskúr
Opið hús:17. sept. kl 12:15-12:45
Skoða eignina Brattahlíð 3A
Brattahlíð 3A
810 Hveragerði
140.2 m2
Fjölbýlishús
413
641 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin