Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega vandaða og glæsilega 132,2 fermetra 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á 3. hæð, efstu, með aukinni lofthæð, tveimur baðherbergjum og stórum suðursvölum auk 2ja sér bílastæða á lóð í fallegu og vel staðsettu þríbýlishúsi við Lautarveg 16 í Fossvogi í Reykjavík.
Hjónaherbergi með sér baðherbergi innaf. Gólfhiti er í baðherbergjum.
Svalir útaf hjónaherbergi til vesturs með fallegu útsýni til sjávar og mjög stórar suðursvalir útaf stofu með fallegu sjávarútsýni.
Lofthæð í stórum hluta íbúðarinnar er yfir 3,0 metrar og innbyggð led-lýsing er í loftum.
Stórar sameiginlegar hellulagðar svalir eru á 2. hæð, við inngang í íbúðina.
Nánari lýsing:
Forstofa, á 2. hæð, flísalögð um sérinngang og þaðan gengið um steytpan teppalagðan stiga innan íbúðarinnar upp á 3. hæð.
Gangur, parketlagður og með miklum fataskápum.
Hjónaherbergi, parketlagt og rúmgott með fastakápum og útgengi á svalir til vesturs.
Baðherbergi, innaf hjónaherbergi, er með glugga, flísalagt gólf og veggir, vaskápar, vegghengt wc og flísalögð sturta með sturtugleri og innbyggðum tækjum í vegg.
Barnaherbergi, parketlagt og rúmgott með fataskápum.
Baðherbergi II, með glugga, flísalagt gólf og veggir, vegghengt wc., vaskskápur, flísalögð sturta með innbyggðum tækjum í vegg og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Gengið er upp tvö þrep af gangi í alrými sem í eru eldhús og stór stofa:
Eldhús, parketlagt og rúmgott með miklum hvítum + svartbæsuðum innréttingum með kvartsteini á borði og innbyggðri uppþvottavél í vinnuhæð.
Stofa, stór, parketlögð og björt með gólfsíðum gluggum til suðurs út útgengi um tvöfalda svalahurð á stórar þaksvalir sem eru hellulagðar og með fallegu útsýni. Á svölum er gert ráð fyrir heitum potti.
Geymsla, innaf svölum er 4,7 fermetrar að stærð og þar eru vatnslagnir þannig að mögulegt væri að innrétta gufubað.
Í kjallara hússins eru:
Sérgeymsla, 13,1 fermetri að stærð með mikilli lofthæð og lökkuðu gólfi.
Sameiginlegt þvottaherbergi, lakkað gólf og vaskur.
Sameiginleg hjólageymsla, rúmgóð með lökkuðu gólfi.
Húsið að utan lítur vel út.
Lóðin, sem er 622,0 fermetrar að stærð er fullfrágengin með stórum hellulögðum bílastæðum með hitalögnum undir og þar á íbúðin afnotarétt af tveimur sér bílastæðum. Lóð vestan við húsið er tyrfð og afgirt.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað á móti suðri við Lautarveg í Fossvogi þaðan sem stutt er í fallegar gönguleiðir, útivistarsvæði og út á aðalbraut.
Eignin Lautarvegur 16 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 235-9448, birt stærð 112.2 fm. Óskráður hluti ca 22 fm en er í dag hluti af stofu.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is