Miklaborg kynnir: Björt og góð 57 fm 2ja herbergja búð á 2.hæð (1.hæð Skólabrautarmegin) við Skólabraut 3 á Seltjarnarnesi fyrir 65 ára og eldri. Þjónustukjarni er á jarðhæðinni. Þar er rekið fjölbreytt félagsstarf
Allar nánari upplýsingar gefa Rakel Viðarsdóttir löggiltur fasteignasali s: 699-0044 rakel@miklaborg.is og Viðar Böðvarsson löggiltur fasteignasali s: 694-1401 vidar@miklaborg.is
NÁNARI LÝSING: Komið inn anddyri með fataskáp. Baðherbergi er flísalagt með baðinnréttingu, sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél. Eldhús er opið við stofu, með góðri innréttingu . Stofan er björt og er útgengt á yfirbyggðar suður svalir með fallegu útsýni. Svefnherbergið er með skápum, opið að hluta við stofu. Ljóst eikarparket er á öllum gólfum nema baðherbergi en þar eru flísar. Geymsla á hæðinni.
Verið að klára utanhúsviðgerðir á Skólabraut 3-5 sem felast í að endurnýja þak, þakkant, rennur, glugga, múrviðgerðir og málun. Skipt verður um glugga í eldhúsi í þessari íbúð og búið er að koma í veg fyrir leka sem varð vart í eldhúsi.
Þjónustukjarni er á jarðhæðinni. Þar er rekið fjölbreytt félagsstarf og margvísleg tómstundastörf í boði eins og t.d. handavinna, útskurður, bókband, leirlist og fleira. Þá eru spilakvöld haldin, bingó, billiard, pútt og fleira. Boðið er upp á heitan mat í hádeginu ásamt morgunkaffi. Einnig er hægt að fara í hárgreiðslu og fótsnyrtingu. Húsvörður er starfandi í húsinu. Stutt er í alla helstu þjónustu eins og heilsugæslu, sundlaug, World class, bókasafn og Hagkaup á Eiðistorgi.
Eignin er laus við kaupsamning.
Allar nánari upplýsingar gefa Rakel Viðarsdóttir löggiltur fasteignasali s: 699-0044 rakel@miklaborg.is og Viðar Böðvarsson löggiltur fasteignasali s: 694-1401 vidar@miklaborg.is
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
17/02/2021 | 32.850.000 kr. | 37.500.000 kr. | 56.7 m2 | 661.375 kr. | Já |
20/11/2006 | 12.125.000 kr. | 20.900.000 kr. | 57.5 m2 | 363.478 kr. | Nei |
29/06/2006 | 12.125.000 kr. | 19.500.000 kr. | 57.5 m2 | 339.130 kr. | Já |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
170 | 56.7 | 53,5 | ||
111 | 71.8 | 54,9 | ||
105 | 49.6 | 54,5 | ||
107 | 56.5 | 54,9 | ||
105 | 47.3 | 54,9 |