Elka lgf., s. 863-8813, og Fasteignasalan TORG kynna Vaðstíg 5 í Grímsnes- og Grafningshreppi – bjart og rúmgott einbýlishús á 9.300 m² eignarlóð með fallegu útsýni yfir sveitina og fjallahringinn.
Húsið er skráð 119,7 m² samkvæmt fasteignayfirliti og í því eru fimm svefnherbergi miðað við núverandi nýtingu. Við húsið er stór pallur með heitum potti og á pallinum standa tvær geymslur, þar af önnur með glugga sem er nýtt sem herbergi/gestarými. Virkilega falleg eign sem getur hentað vel sem fjölskylduheimili, en einnig þeim sem leita að rúmgóðu húsi til frístundadvalar.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.
Nánari lýsing:
Anddyri er bjart og með góðu rými fyrir fatnað og skó. Inn af því er geymsla sem er í dag nýtt sem svefnherbergi.
Eldhús og borðstofa mynda opið og hlýlegt alrými. Stórir gluggar hleypa dagsbirtunni inn og tengja rýmið við útsýnið og pallinn.
Eldhúsið er með dökkri, stílhreinni innréttingu, góðu skápaplássi og rúmgóðri eyju. Helluborð, ofn og vaskur eru felld inn í innréttinguna og úr eldhúsinu er útgengt á pallinn. Inn af eldhúsi er búr.
Sólstofa/stofa er bjart og þaðan er útgengt á stóran sólpall.
Í húsinu eru sex svefnherbergi samkvæmt núverandi nýtingu og hentar því vel fyrir stóra fjölskyldu.
Tvö baðherbergi eru í húsinu. Annað er með sturtu, upphengdu salerni, vaski og glugga. Hitt er inn af hjónaherbergi og er einnig með sturtu.
Hiti í gólfi á báðum baðherbergjum og í skrifstofu.
Stór pallur liggur í kringum húsið sem nýtist sem frábært útivistarsvæði.
Þar er heitur pottur og nægt pláss til að njóta útsýnisins. Á pallinum eru tvær geymslur. Önnur þeirra er með opnanlegum glugga og er í dag nýtt sem herbergi eða gestarými; geymslur eru ekki inní fermetratölu hússins en eru báðar einangraðar og upphitaðar.
Eignarlóðin er 9.300 m², stór og grasgefin, með fjölbreytta möguleika til útiveru og ræktunar. Þar mætti til dæmis með með skógrækt, beitiland fyrir hesta eða annað dýrahald.
Skólaakstur er á svæðinu ásamt hitaveitu.
Virkilega áhugaverð eign fyrir þá sem vilja njóta náttúru og útsýni í góðu fjölskylduhúsi.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.