EIGNAVER FASTEIGNASALA.
Þórunnarstræti 129, íbúð á fyrstu hæð. LAUS STRAX, LYKLAR Á SKRIFSTOFU, BÓKIÐ SKOÐUN Í S: 460-6060
Rúmgóð og björt, 5-6 herbergja hæð í þríbýli ásamt innbyggðum bílskúr á góðum stað á neðri-Brekkunni. Íbúðin er 133,2 fm og bílskúr 27,9 fm., samtals er heildarstærð eignar 161 fm..
Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:
Forstofa, fjögur svefnherbergi, hol, borðstofa og stofa í einu rými, gangur, baðherbergi, eldhús, þvottahús og geymsluherbergi inn af þvottahúsi sem vel má nota sem svefnherbergi.
Að auki er í séreign, bílskúr á jarðhæð og geymsla undir útitröppum að austan.
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fatahengi.
Hol, parket á gólfi.
Eldhús með rúmgóðri sprautulakkaðri innrétting,ísskápur og uppþvottavél geta fylgt með við kaupin. Parket er á gólfi.
Stofa/borðstofa, er rúmgóð og gluggar til tveggja átta. Parket er á gólfi. Gengið er um svalahurð út á svalir til vesturs.
Svefnherbergin eru samtals fjögur. þrjú þeirra eru á svefnherbergisgangi og eitt forstofuherbergi. Öll með parketi á gólfi, fataskápur þremur þeirra
Gangur, parket er á gólfi.
Baðherbergi er með hvítri innréttingu og nýlegum sturtuklefa. Físar eru á gólfi og vegjum að mestu.
Þvottahús, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi, útgengi út á svalir til norðurs og þaðan liggur stigi niður að inngönguhurð í sameign, geymslu og bílskúr.
Geymsla/svefnherbergi, parket á gólfi og góðir skápar. Á teikningu er þetta rými skráð sem geymsla en nýtist sem herbergi í dag.
Í sameign er lítil snyrting og inntaksrými ásamt geymslugangi.
Bílskúr er með steyptu, lökkuðu gólfi og rafdrifinni bílskúrshurð.
Geymsla í séreign er undir steyptum tröppum sem liggja upp í íbúðina að austan.
Annað:
- Þak yfirfarið 2020, þá var skipt um járn og skorsteinn tekinn af.
- Hús múrviðgert og málað að utan 2020.
- Húsið lítur vel út að utan, stórt, malbikað bílaplan fyrir framan eignina.
- Góð staðsetning, stutt í verslun- og þjónustu á Glerártorgi.
- Eignin er í göngufæri við sundlaug Akureyrar og miðbæinn.
- Íbúðin er laus við undirritun kaupsamnings.
Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu.
Nánari upplýsingar veita:
Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is
Begga s: 845-0671 /begga@eignaver.is
Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is