Fasteignasalan Valhöll og Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905, kynna í einkasölu, Markland 2, 108 Reykjavík;
Fallega, bjarta og rúmgóða 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð sem hefur fengið gott viðhald nýlega.
- Eignin er skráð samtals 97,6 fm sem hér segir: Íbúð 93 fm + geymsla 4,6 fm
- 4 herbergja - 11,7 fm suðursvalir (óskráðar í fm íbúðar)
- 2008: Endurnýjað eldhús og eldhús sameinað þvottahúsi.
- 2009: Þakið viðgert og viðhaldið.
- 2012: Endurnýjað baðherbergið.
- 2017: Nýtt harðparket og hurðar á alla íbúðina.
- 2023-2025: Sprunguviðgerðir og málun.
Eignin skiptist í : Forstofu/hol, eldhús/þvottaaðstaða, stofu/borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í sameign.
Nánari lýsing:
Forstofa/hol: Parketlagt með fataskáp. Af því liggja aðrar vistarverur á hæðinni. Að auki er stór skápur í flútti við eldhúsinnréttinguna.
Eldhús: Endurnýjað 2008; Eldhús og þvottaherbergi sameinað. Nýjir eldhússkápar, ofn og helluborð. Nýtt rafmagn og hiti í gólfið. Með fallegri hvítri innréttingu á 3 veggjum auk eyju. Helluborð, ofn í vinnuhæð og tengi f. uppþvottavél. Óvenju mikið borð- og skápapláss. Góð þvottaaðstaða með tengi fyrir vélar og borðpláss, snúrur. Bekkur er við eyjuna sem er hirsla og er naglfastur.
Stofa/borðstofa: Parketlögð, rúmgóð og björt með fallegri gluggasetningu og útgengi á 11,7 fm útsýnissvalir sem eru meðfram stofu og eldhúss.
Svefnherbergi 1: Rúmgott, parketlagt með fataskáp á heilum vegg.
Svefnherbergi 2: Parketlagt.
Svefnherbergi 3: Parketlagt.
Baðherbergi: Endurnýjað 2012; Baðkar fjarlægt og sturtuklefi settur. Pípulagnir og rafmagn endurnýjað.Flísalagt á gólfi og veggjum með hvítri vaskinnréttingu, upphengdu salerni og "walk in" sturtu.
Þvottahús: Skv. teikningu þá var þvottahúsið af eldhúsi en er í dag sameinað eldhúsi (2008) með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: 4,6 fm í sameign í kjallara.
Samantekt: Í heildina er um að ræða tölvert endurnýjaða, vel skipulagða, bjarta og fallega, 4ra herbergja íbúð í húsi sem hefur fengið gott viðhald, á besta stað í 108 Rvk.
Góð staðsetning; Öll skólastig eru í næsta nágrenni auk annarar þjónustu ásamt glæsilegu útivistarsvæði og gönguleiðum í Fossvogsdal.
Allar nánari upplýsingar veitir Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905