Falleg og björt 132,7m² 4ja herbergja íbúð á 2. hæð á Akurvöllum 1. Stutt í alla helstu þjónustu eins og leikskóla, skóla, sundlaug og glæsilegt íþróttasvæði Hauka.- Frábær staður á Völlunum nálægt allri þjónustu
- Í göngufæri frá tveimur leikskólum hverfisins og grunnskóla
- Örfáar mínútur gangandi í sundlaug og matvöruverslanir.Nánari upplýsingar veita:Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Orri Hilmarsson astmf. S: í 615-3011 eða orri@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurNánari lýsing:Forstofa: Gengið er inn í forstofu með fataskáp. Frá forstofu er gengið inn á gang með svefnherbergjum til vinstri, baðherbergi og þvottahús til hægri.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa, parket er á gólfi og gluggar sem hleypa birtu inn í rýmið. Úr stofu er útgengt á svalir.
Eldhús: Eldhús með parketi á gólfi og innbyggðum bakaraofni.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með parketi á gólfi.
Svefnherbergi II og III: Svefnherbergi með parketi á gólfi og gluggum sem hleypa birtu inn.
Baðherbergi: Baðherbergi var endurnýjað árið 2022, er með flísum á gólfi, walk-in sturtu, baðkari, upphengdu klósetti og handklæðaofni.
Þvottahús: Rúmgott þvottaherbergi í íbúð. Flísalagt gólf, skolvaskur og með góðu hilluplássi.
Geymsla: Sérgeymsla er 7,6 m² í kjallara.
Svalir: Rúmgóðar svalir með fallegu útsýni.
Stutt í alla helstu þjónustu - göngufæri frá tveimur leikskólum hverfisins og grunnskóla, einnig í 3 matvöruverslanir, sund og alla helstu þjónustu.
Birt stærð skv. HMS er 132,7m².
Íbúðin er 125,1m² og geymsla er 7,6m².
3 svefnherbergi og möguleiki að bæta við öðru svefnherbergi
Sameiginleg hjólageymsla á jarðhæð.
Sameiginleg hjóla-og vagnageymsla í kjallara.
Sameiginlegt bílastæði fyrir íbúa, tvö rafhleðslustæði eru á bílastæðinu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.