Fasteignaleitin
Skráð 21. ágúst 2024
Deila eign
Deila

Hesjuvellir

EinbýlishúsNorðurland/Akureyri-601
330.4 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
170.000.000 kr.
Fermetraverð
514.528 kr./m2
Fasteignamat
49.250.000 kr.
Brunabótamat
120.272.000 kr.
SS
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1936
Þvottahús
Garður
Útsýni
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2144512
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjaðar af núverandi eigendum
Raflagnir
Núverandi eigendur hafa endurnýjað það að hluta. 3ja fasa tenglar
Frárennslislagnir
Rotþró
Gluggar / Gler
Búið er að endurnýja hluta af gluggum
Þak
Gamalt - nýverandi eigendur létu setja hitakapla.
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita - tekin inn fyrir um 8 árum og eru lagnir í suðurhluta hússins frá þeim tíma
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Jörðin Hesjuvellir í Lögmannshlíð rétt fyrir ofan Akureyri - Frábær staðsetning með stórbrotnu útsýni til allra átta

Um er að ræða íbúðarhús með tveimur íbúðum, uppgert fjós/sal með áfastri stórri hlöðu, hesthús fyrir 12 hesta, fjárhús sem að hluta er innréttað sem hnakkageymsla og kaffistofa, þar fylgir einnig hlaða og tvö minni hús sem notuð eru sem hænsnahús og geymsluskúr og c.a 10 hektarar lands, landið í kringum húsin og gömlu túnin ofan og sunnan við hesthúsið.
Jörðin er staðsett beint ofan Akureyrar og er bara nokkurra mín akstur niður í miðbæ. Staðsetning er rétt norðan við Lögmannshlíðar kirkjuna og beint ofan við hesthúsahverfið og reiðhöllina.  Íbúðarhúsið stendur í  um 200 metra hæð yfir sjávarmáli.
Enginn bústofn eða vélar fylgja.

 
Íbúðarhúsið (F2144512) er á tveimur hæðum og byggt í tvennu lagi. 1936 og 1976.  Birt stærð er 221,5 m².  Húsinu fylgir 840 m² lóð (Landeignanúmer L219921).
Húsið er með tveimur aðskildum íbúðum. Hvor með sér inngangi.
Gengið er upp steyptar tröppur og komið inn í flísalagða forstofu með góðum innréttingum. Til hægri er herbergi/skrifstofa með dúk á gólfi. Gengið er inn á flísalagt hol og þaðan inn á salerni.
Til vinstri er gengið inn í parketlagða stofu sem stórkostlegu útsýni yfir Akureyri og Vaðlaheiði.  Innst í stofunni hefur verið innréttað herbergi með fljótandi veggjum sem auðvelt er að fjarlægja.
Til hægri úr holi er lítil borðstofa og innaf því er eldhús. Hvorutveggja parketlagt (eldhús með korkflísum).  Góðir skápar eru í eldhúsi. Úr eldhúsinu er gengið inn í svefnherbergi með gluggum til norðurs og austurs. Fataskápar eru í svefnherbergi.
Gengið er úr eldhúsi niður í kjallara í gegnum bíslag. Í norðurenda kjallarans eru tvær geymslur og þvottahús. 
Í suðurenda er um 50 m² íbúð. Rúmgott svefnherbergi, geymsla (sem breyta má í herbergi), rúmgott eldhús/borðstofa og baðherbergi. Gengið er inn í íbúðina að sunnan en einnig er innangengt í hana úr norðurhluta kjallarans. Kjallari er steyptur og í nýja hlutanum er steypt plata en timburgólf í gamla hlutanum.  Hæðin er timburgind sem klædd er með álklæðningu. Þak er hallandi með bárujárni.
Hitaveita var lögð í húsið fyrir nokkrum árum og einnig ljósleiðari.
Endurnýjuð kaldavatnsinntök. Kalt vatn er án endurgjalds.
Fyrir um 4 árum var drenað með vesturhlið hússins.
 
Fjós er áfast við íbúðarhúsið. Það er rétt um 90 m² og algerlega búið að endurbyggja það. Nýjir gluggar og hurðir. Búið að steypa gólf. Setja ofna með hitaveitu, heitt og kalt vatn og frárennsli. Stórir gluggar eru í norðurstafni og margir gluggar til austurs. Ein einföld og ein tvöföld hurð eru út til austurs. Fjósið er í dag eitt rými og því fjölmargir möguleikar á nýtingu. Áfast við fjósið er stór hlaða sem er upphafleg.
Ofan við íbúðarhúsið er hús sem byggt var 1992 sem kálfahús og er tæpir 110 m² að stærð. Því hefur verið breytt í gott Hesthús sem rúmar 12 hesta í eins hesta stíum.  Tvær af þeim eru graðhesta stíur.  Áföst er lítil hlaða.
Við hliðina á því eru fjárhús þar sem krónni næst hesthúsinu hefur verið breytt í kaffistofu, hnakkageymslu og salerni. Heitt og kalt vatn er í því. Restin af fjárhúsinu er eitt opið rými. Áfast við það er hlaða þar sem lítið verkstæði hefur verið smíðað næst hnakkageymslunni.
Til viðbótar eru tvö önnur hús. Annarsvegar gamalt hesthús sem nýtt hefur verið sem hænsnahús og véla og verkfærageymsla sem er tvískipt og hefur helmingur hennar verið gerður upp. Útihús eru byggð í kringum 1960.
Það land sem mun fylgja eru gömul tún sem eru í kringum útihúsin og eru það um 10 hektarar.
 
Fasteignir.
Íbúðarhús   F2144512                 221,5 m².

 
Fjós   F2144510                          90 m².  c.a.  5 x 18,25 m
Innangengt er í fjósið frá íbúðarhúsinu í gegnum bíslag þar sem einnig er farið niður á neðri hæð íbúðarhússina. Úr sama bíslagi er einnig hurð út í garð austan og sunnan við íbúðarhús.
Algerlega er búið að endurbyggja fjósið á síðustu árum. Endurnýja bæði veggi og þak. Skipta um glugga og hurðir. 5 gluggar eru á austur hlið og þar eru einnig tvær útihurðir. Önnur einföld og hin tvöföld. Norður stafninn er allur gluggar. Vesturhlið er áföst Fjóshlöðunni og þar eru tvær nýjar útihurðir í sitt hvorum enda. Fjósið er klætt að innan með greni krossvið. Í það er búið að leggja heitt og kalt vatn sem og frárennsli. Einnig er búið að setja nýja ofna undir gluggana á austur hliðinni. Ekki hafa verið reistir neinir milliveggir þannig að það eru allir möguleikar opnir.
 
Fjóshlaða   F2144510                144 m².    18x8 metrar
Fjóshlaðan er áföst fjósinu.  C.a. hálfur meter uppsteyptur og ofan á það kemur timburgrind klædd bárujárni. Þak er með risi og er það einnig bárujárnsklætt. Suður veggur er að stórum hluta steyptur og einnig milliveggur milli fjóss og hlöðu. Möl er í gólfi.  Á norðurstafni er stórt hurðargat og í því er nýleg iðnaðarhurð.
 
Hesthús  F2144510                    38 m².       7,30x5,20 metrar
Þetta hús er í dag nýtt sem hænsnahús. Hægt er að þrískipta því. Hurðagöt eru á austur og suðurhlið. Kalt vatn og rafmagn er í húsinu. Steypt gólf og síðan timburgrind sem klædd er álklæðningu. Tveir gluggar, til vesturs og austurs.
 
Kálfahús  F2144510                  108,9 m².
Kálfahúsið er byggt 1992 og hefur verið breytt í hesthús. Haughús er undir því. 12 eins hesta stíur eru í húsinu, þar af 2 graðhesta stíur. Þar er 3ja fasa rafmagn og kalt vatn. Lítið mál er að leiða heitt vatn úr fjárhúsi. Tvær umgangshurðir eru til austurs og suðurs (í átt að fjárhúsinu þar sem kaffistofa og hnakkageymsla eru), einnig er stór hurð til vesturs út í stórt gerði. Lítil hlaða er á húsinu með sérstakri hurð til að setja inn hey.  Þangað komast 2-3 rúllur.
 
Fjárhús F2144510                     113 m².        8,40x13,50 metrar
Sunnan við Hesthús/kálfahús eru fjárhús. Krónni sem var næst hesthúsi hefur verið breytt í kaffistofu, hnakkageymslu og salerni. Þar er rafmagn, heitt og kalt vatn. Tvöföld hurð er úr kaffistofu til austurs og umgangs hurð er úr hnakkageymslu til norðurs í átt að hesthúsi. Einnig er hurð úr hnakkgeymslu til vesturs inn í hlöðuna. Þar hefur verið byggt lítið verkstæði. Gólf í þessum nyrsta hluta fjárhússins eru steypt.
Fjárhúsin eru að öðru leyti eitt rými og möl er í gólfi.
 
Hlaða F2144510                       81 m².         6x13,50 metrar
Áföst við fjárhúsin (vestan við) er hlaða. Hún er eitt rými fyrir utan lítið verkstæði sem hefur verið innréttað í norð/austur endanum. Hurð er þaðan inn fjárhús. Nokkuð stór hurð er á norður stafni inn í gerðið. Stærri hurð er á suður gafli og þar er léleg iðnaðar hurð. Tvær inngöngu hurðir eru á austur vegg inn í fjárhúsin.
 
Véla/verkfærageymsla           44 m².     9,40x4,70 metrar
Sunnan við fjárhús er lítið hús. Það er tvískipt og er austur hlutinn uppgerður með tvöfaldri hurð. Vestur hlutinn er upphaflegur og þar er einnig lægra undir loft. Gólf eru steypt og síðan er trégrind klædd með áli. Kalt vatn og rafmagn er í húsinu.
 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
18/01/201110.235.000 kr.52.000.000 kr.221.5 m2234.762 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Byggt 1966
Fasteignanúmer
2144510
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
313.000 kr.
Fasteignamat samtals
313.000 kr.
Brunabótamat
804.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 1966
Fasteignanúmer
2144510
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
108.000 kr.
Fasteignamat samtals
108.000 kr.
Brunabótamat
276.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 1958
Fasteignanúmer
2144510
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
686.000 kr.
Fasteignamat samtals
686.000 kr.
Brunabótamat
1.765.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 1962
Fasteignanúmer
2144510
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
436.000 kr.
Fasteignamat samtals
436.000 kr.
Brunabótamat
1.120.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 1965
Fasteignanúmer
2144510
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
218.000 kr.
Fasteignamat samtals
218.000 kr.
Brunabótamat
560.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 1965
Fasteignanúmer
2144510
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
510.000 kr.
Fasteignamat samtals
510.000 kr.
Brunabótamat
1.310.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignanúmer
2144510
Byggt 1992
108.9 m2
Fasteignanúmer
2144510
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
10.550.000 kr.
Fasteignamat samtals
10.550.000 kr.
Brunabótamat
26.550.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 1964
Fasteignanúmer
2144510
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
131.000 kr.
Fasteignamat samtals
131.000 kr.
Brunabótamat
337.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
GötuheitiPóstnr.m2Verð
600
288.9
169,9
600
372.5
172,4

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eikarlundur 20
Bílskúr
Skoða eignina Eikarlundur 20
Eikarlundur 20
600 Akureyri
288.9 m2
Einbýlishús
726
588 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Ásabyggð 8
Bílskúr
Skoða eignina Ásabyggð 8
Ásabyggð 8
600 Akureyri
372.5 m2
Einbýlishús
725
463 þ.kr./m2
172.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin