Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna fallega og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) með sér inngangi frá svölum og sérstæði í lokuðum bílakjallara. Íbúðin er með suðursvalir og þvottaherbergi innan íbúðar. Húsið lítur vel út og hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. Auk þess er lóðin falleg, gróin og með fallegum stéttum.
Eignin skiptist í: Forstofu, gang, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og geymsluloft. Auk bílastæðis í bílakjallara.
Nánari lýsing: Forstofa: Með flísum á gólfi, fataskáp og glugga til norðurs. Gangur: Með parketi á gólfi. Gengið er upp á geymsluloft um fellistiga frá gangi. Eldhús: Með parketi á gólfi og eldhúsinnréttingu með stórri eldhúseyju. Eldavél og tengi fyrir uppþvottavél. Gluggar til austurs/suðurs og útgengi á svalir. Svalir: Snúa til suðurs. Stofa: Með parketi á gólfi og gluggum til suðurs. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu og er opin við eldhús. Baðherbergi: Var endurnýjað fyrir u.þ.b. 10 árum síðan. Flísar á gólfi og veggjum. Flísalögð sturta með gleriþili og upphengt salerni. Innrétting við vask með speglaskáp, hár skápur og handklæðaofn. Gluggi til norðurs. Hjónaherbergi: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs. Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til austurs. Þvottaherbergi: Er staðsett innan íbúðar. Dúkur á gólfi og vinnuborð. Hillur og tenglar fyrir þvottavél/þurrkara. Geymsluloft: Með fellistiga frá gangi. Mikið geymslurými og góð loftun. Sérgeymsla: Er í sameign sem er 5,9 fermetrar að stærð. Merkt 301 og málað gólf.
Bílastæði: Sem fylgir íbúð er nr. 02-0033 (301) og er staðsett í lokuðu bílastæðahúsi. Bílastæðið er skráð inn í birtum fermetrum (12 fermetrar). Rafhleðslustöð frá ON er uppsett og tilbúin til notkunar
Hjóla- og vagnageymsla: Sameiginleg við inngang húss.
Gott viðhald og samvinna hefur verið um rekstur húsfélags. Húsgjöld eignarinnar eru kr. 26.682 á mánuði , innifalið í húsgjöldum er almennur rekstur, hiti íbúða, rafmagn og hiti í sameign, húseigandatrygging og þrif sameignar. Gjald fyrir bílastæðakjallarann er kr 3.500.
Samkvæmt fasteignamati ríkisins er íbúð á hæð skráð 81,6 fermetrar og geymsla í kjallara skráða 5,9 fermetrar og bílastæði í bílastæðahúsi 12 fermetrar. Samtals 99,5 fermetrar, ásamt sameignarrými í kjallara.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.