RE/MAX ásamt ÞÓRDÍS DAVÍÐS, lgf & SALVÖR DAVÍÐS, lgf kynna:Vel staðsett og gott 6-7 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum á þessum vinsæla stað í Garðabæ. Gróðursæll garður og hellulögð innkeyrslan. Fallegt útsýni er frá sjónvarpsholi/holi efri hæðar sem og af svölum. Stutt er í alla helstu þjónustu, sund, skóla, leikskóla, Fjölbrautaskóla Garðabæjar og fallegar gönguleiðir.
SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDIS * Eldús endurnýjað haustið 2020
* 5 svefnherbergi
* Baðherbergi og gestasnyrting
* Neðri hæð máluð og lagt harðparket haustið 2020
* Léttir veggir og því auðvelt að breyta stærðum herbergja á efri hæð.
* Eignarlóð - 702,0 fm.SMELLTU HÉR og skoðaðu þessa eign í 3-D, þrívíðu umhverfi. 3D = OPIÐ HÚS ÞEGAR ÞÉR HENTAR
Ekki þarf sérstakt forrit til að skoða eignina í 3D.Nánari lýsing:Eignin er skráð 158,6 fm hjá HMS og saman stendur af forstofu, þvottahúsi, búri, eldhúsi, borðstofu, stofu, 5 svefnherbergjum, sjónvarpsholi, baðherbergi, gestasnyrtingu, geymslu, svölum og góðum garði sem umlykur húsið. Húsið er svokallað "Siglufjarðarhús", er einingarhús úr timbri á tveimur hæðum. Tveir inngangar eru í húsið. Annar er aðalinngangur og hinn er í gegnum þvottahúsið.
Aðalhæð ( 87,2 fm) samanstendur af forstofu, forstofuherbergi, þvottahúsi með útihurð, eldhúsi, borðstofu, stofu og stiga upp á efri hæð. Úr stofu er útgengt í garð.
Efri hæð (71,4 fm) samanstendur af sjónvarpsholi, 4 herbergjum, geymslum og baðherbergi. Úr einu herbergjanna er útgengt á svalir með fallegu útsýni.
Allar nánari upplýsingar veita: Þórdís Davíðs, lgf., í síma
862-1914 eða á
thordis@remax.is Salvör Davíðs, lgf., í síma
844-1421 eða á
salvor@remax.isAðalhæðin - 87,2 fm:Forstofa: Komið er inn í forstofu með harðparket á gólfi.
Herbergi: Inn af forstofu með harðparketi á gólfi.
Gestasnyrting: Inn af forstofu með hvítri innréttingu undir handlaug, upphengdu salernig, flísum á vegg að hluta og opnanlegt fag.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu og björtu samliggjandi rými.
Eldhús:
Var allt endurnýjað haustið 2020 og er hvít innrétting með góðu skápa- og skúffuplássi. Vinnupláss á borði er einnig gott, bakaraofn í vinnuhæð, innbyggður örbylgjuofn, laus eyja og tengi fyrir uppþvottavél. Góður búrskápur er í eldhúsinu og fylgir frystikistan með eigninni.
Borðstofa og stofa: Eru samliggjandi í opnu og björtu rými og þaðan er góður stigi úr timbri upp á efri hæðina. Opið er úr borðstofu inn í eldhús.
Þvottahús: Er inn af eldhúsi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, vaski, glugga með opnanlegu fagi, með flísum á gólfi og innangengt úr innkeyrslu.
Gólfefni neðri hæðar: Nýlegt harðparket og flísar.
Efri hæðin - 71,4 fm (undir súð):Sjónvarpshol / stigapallur: Komið er upp á stigapall og sjónvarpshol sem er bjart og gott með góðri lofthæð. Þaðan er farið í önnur rými efri hæðar.
Baðherbergi: Er með viðar innréttingu með tveimur vöskum, sturtuklefa, timburklædda veggi að hluta og flísum að hluta, kork á gólfi og glugga með opnanlegu fagi. Góð lofthæð er inni á baðherberginu.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með góðri lofthæð, fataskápum og parketi á gólfi.
Barnaherbergin eru 3: Góð lofthæð er í þeim öllum og úr einu þeirra er farið út á góðar vestur svalir. Tvö þeirra eru með lausum fataskápum og eitt með innbyggðum fataskáp. Parket á gólfum herbergja.
Geymslur á efri hæðinni eru þrjár. Tvær eru undir súð en sú þriðja er við stigapall.
Gólfefni efri hæðar: Parket og korkur.
Húsið stendur á 702,0 fm eignarlóð og er umhverfi hússins er allt hið snyrtilegasta. Gróðursæll garður og hellulögð innkeyrslan.Um er að ræða gott fjölskylduhús á þessum vinsæla og góða stað þar sem öll þjónusta er innan seilingar og stutt í náttúruna og fallegar gönguleiðir.Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í þrívíðu umhverfi, ferðast auðveldlega á milli herbergja og kynnt þér rýmið = Þitt eigið opið hús þegar þér hentar
Allar nánari upplýsingar veita: Þórdís Davíðs, lgf., í síma
862-1914 eða á
thordis@remax.is Salvör Davíðs, lgf., í síma
844-1421 eða á
salvor@remax.is----------------------------------
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. sjá nánari upplýsingar um gjaldskrá á heimasíðu lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.ERTU í fasteignahugleiðingum? Við kíkjum til þín í spjall !Við höfum starfað við fasteignasölu í yfir áratug.
Við leggjum okkur fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur.
Hjá okkur færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga.Hafðu samband í dag!-
Þórdís Björk Davíðsdóttir, lgf í síma
862-1914 eða
thordis@remax.is-
Salvör Þóra Davíðsdóttir, lgf í síma
844-1421 eða
salvor@remax.is