Um er að ræða vel skipulagða og mjög rúmgóða 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýli í Glerárhverfi. Skráð stærð skv. HMS er 96,9 fm. en auk þess er mjög stór geymsla í sameign.
Eignin skiptist í stofu, eldhús, þvottahús, geymslu innan íbúðar, tvö svefnherbergi og baðherbergi.
Forstofa er með parketi á gólfi og fataskáp. Stofa er rúmgóð og björt með parket á gólfi og stórum glugga til suðurs. Eldhús er með parketi á gólfi, hvít innrétting sem liggur í U. Inn af eldhúsi er gengið inn í þvottahús og þar er hvít innrétting og pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Í þvottahúsi er málað gólf. Inn af þvottahúsi er rúmgóð geymsla sem er með dúk á gólfi. Svefnherbergin eru tvö og góðir fataskápar í öðru þeirra. Úr hinu herberginu er gengið út á suðursvalir með góðu útsýni til austurs. Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum. Þar er hvít innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og sturtuklefi með glervængjum.
Í sameign er stór og afar rúmgóð sér geymsla sem fylgir íbúðinni, líklega um 20 fm.. Auk þess er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Annað: -Eignin getur verið laus fljótlega -Blokkin var máluð að utan í sumar -Nýjar útidyrahurðir á blokkinni -Stigagangur tekinn í gegn nýlega, nýtt teppi og veggir málaðir -Góð staðsetning þar sem stutt er í matvöruverslun, skóla og íþróttasvæði Þórs
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld. 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna). 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.