Fasteignaleitin
Skráð 19. feb. 2024
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia Resort

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
177 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
61.500.000 kr.
Fermetraverð
347.458 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
200170224
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Stór verönd og svalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTT EINBÝLISHÚS – GLÆSILEGT RESORT*
Vandað og fallegt einbýlishús á frábærum stað Í hinu nýja og glæsilega 700.000 fm., SANTA ROSALIA LAKE AND LIFE RESORT. Santa Rosalia stöðuvatnið er miðpunktur svæðisins og stærsta manngerða stöðuvatn í Evrópu, 16.000 fm.,  Þar er frábær aðstaða, sandströnd, eyja til að vaða út í, góð aðstaða fyrir vatnaíþróttir og ýmislegt fleira. Á svæðinu er einnig ævintýra golfvöllur, frisbígolfvöllur, göngu-, skokk og hjólaleiðir, picknick svæði, jogasvæði, leikvellir fyrir börnin og ótal margt fleira skemmtilegt. Við vatnið og golfvöllinn er nýr og glæsilegur strand- og golfklúbbur, með veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Einnig verður matvöruverslun á staðnum, en stutt er í litla bæi í kring með góðu úrvali af verslunum og veitingastöðum. Örstutt frá ströndinni og bátahöfninni (4 km. 15 mín. á hjóli) í Los Alcazares. Mar Menor golfvöllurinn er í göngufæri, en einnig eru fjölmargir fleiri golfvellir á svæðinu. Ca. 1 klst. akstur í suður frá Alicante flugvelli, 30 mín. akstur frá Corvera, nýja alþjóðlega flugvellinum í Murcia.
Frábært tækifæri til að eignast glænýtt og fallegt einbýlishús á góðum stað í sólinni á frábæru verði. Dásamleg fjölskylduparadís.
AÐEINS EITT HÚS Í BOÐI.


SANTA ROSALIA RESORT ER ALGJÖR NÝJUNG Á FASTEIGNAMARKAÐNUM Á SPÁNI. TILVALIÐ TÆKIFÆRI FYRIR FJÁRFESTA.
Fyrstu áfangar seldust upp á nokkrum dögum og nýir áfangar sem koma í sölu eru fljótir að seljast upp.
Hjá Spánareignum er hægt að skrá sig á forsölulista og geta þá valið gott hús áður en þau fara í almenna sölu.

HÉR ER UM AÐ RÆÐA EITT HÚS SEM VAR SELT, EN KOM TIL BAKA Í SÖLU  AF SÉRSTÖKUM ÁSTÆÐUM, OG ÞVÍ UM EINSTAKT TÆKIFÆRI AÐ RÆÐA TIL AÐ EIGNAST NÝTT OG GLÆSILEGT HÚS Á ÞESSUM VINSÆLA STAÐ, TILBÚIÐ TIL AFHENDINGAR STRAX, OG FULLBÚIÐ FALLEGUM HÚSGÖGNUM OG GÓÐUM RAFMAGNSTÆKJUM Í ELDHÚSI.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir.is. GSM 777 4277.


Nánari lýsing:
Þrjú svefnherbergi, þrjú baðherbergi. Stór verönd, sér garður með  góðri aðstöðu.  Svalir út frá svefnherbergi á efri hæð. Bílastæði. 
Jarðhæð: Stofa, borðstofa og eldhús í rúmgóðu opnu rými og útgengi út á veröndina sem er með góðu aðgengi að einkagarði í suður. Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi.
Efri hæð: Stór hjónasvíta með sér baðherbergi, fataherbergi og útgengi út á góðar svalir. 

Vandaðar og fallegar innréttingar. Hiti í gólfum í baðherbergjum.
Helluborð, bökunarofn, og vifta í eldhúsi fylgir. Einnig ísskápur, uppþvottavél og þvottavél og lýsing, bæði inni og úti.
Húsgögn fylgja líka með, og því hægt að flytja strax inn og byrja að njóta,


Örstutt göngufæri er að Santa Rosalia stöðuvatninu með frábærri sólbaðsaðstöðu, ströndum, og möguleika á ýmsum skemmtilegum vatnaíþróttum.
Ca. 15 mín. tekur að hjóla niður á á skemmtilegu göngugötuna í Los Alcazares, sem liggur niður á fallega sandströnd. Fjöldi verslana og veitingastaða eru þar á svæðinu. Meðfram ströndinni er margra kílómetra langt “promenade” sem býður upp á skemmtilega göngutúra. Glæsileg smábáta og snekkjuhöfn og fjölbreytt mannlíf. Fjölmargir vinsælir og skemmtilegir golfvellir eru í næsta nágrenni og hinn vinsæli Mar Menor er í göngufæri frá Santa Rosalia svæðinu.

Verð:
3 svefnh. + 3 baðh.Verð 410.000 Evrur eða 61.500.000ISK (miðað við 1 Evra = 150ISK)
Aðeins eitt hús eftir á þessu verði.
Til afhendingar strax.

Los Alcazares, sem er í næsta nágrenni, er ekta spænskur strandbær með fjölbreyttu bæjarlífi, útimarkaði og götuhátíðum og gefst hér einstakt tækifæri til að eignast vandað og fallegt einbýlishús með nútímaþægindum í sjarmerandi spænsku umhverfi. Skólar og heilbrigðisþjónusta í næsta nágrenni.
Los Alcazares stendur við Mar Menor, lítið innhaf frá Miðjarðarhafinu, og er þar mikil veðursæld.  Að meðaltali  eru þar um 305 sólardagar, 30 skýjaðir og 30 rigningardagar á ári.


SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: strönd, ný eign, sér garður, golf,
Svæði: Costa Calida, Los Alcazares, Santa Rosalia, Mar Menor,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Benijofar
SPÁNAREIGNIR - Benijofar
Spánn - Costa Blanca
137 m2
Einbýlishús
433
432 þ.kr./m2
59.200.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR San Pedro del Pinatar
SPÁNAREIGNIR San Pedro del Pinatar
Spánn - Costa Blanca
163 m2
Einbýlishús
433
363 þ.kr./m2
59.200.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Spánn - Costa Blanca
191 m2
Raðhús
543
318 þ.kr./m2
60.700.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Ciudad Quesada
SPÁNAREIGNIR - Ciudad Quesada
Spánn - Costa Blanca
170 m2
Einbýlishús
634
352 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache