DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 4. ágúst 2026

Grenigrund 8

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
75.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
82.900.000 kr.
Fermetraverð
1.093.668 kr./m2
Brunabótamat
41.350.000 kr.
Byggt 1962
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
20610501
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Eignamiðlun kynnir:

Vel skipulögð, björt og falleg mikið endurnýjuð þriggja herbergja íbúð ásamt geymsluhúsi á lóð, á jarðhæð í þríbýlishúsi við Grenigrund í Kópavogi.   Eignin er skráð samkvæmt fasteignamati  75,8 fermetrar en er samkvæmt nýrri skráningartöflu 92,4 fermetrar, sem er til samþykktar hjá byggingafulltrúa Kópavogsbæjar. Eignin er með stórri og bjartri stofu þar sem eru dyr út á stóran sólpall í garði, glæsilegu opnu eldhúsi, tveimur rúmgóðum herbergjum, endurnýjuðu baðherbergi og rúmgóðri forstofu þar sem er gengið beint inn af sér bílastæðum við inngang. Hiti í gólfum meginrýma. Sérlega notaleg eign með sér inngangi og aðgengi að garði.
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.


Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is sem einnig sýnir eignina.

Gengið er inn í íbúðina um sérinngang af bílaplani hússins, en hefð er fyrir því að þessi íbúð nýti upphitað tveggja bíla bílastæði fyrir utan inngang íbúðarinnar. Komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og stórum fataskáp. Forstofan er opin í skála eða hol íbúðarinnar þar eldhús og stofur eru beint framundan, herbergi og bað til hægri.
Eldhús er opið með eldunareyju þar sem hægt er að sitja við. Gaseldavél er í eyjunni, viðarlit innrétting með grárri plötu á tveimur veggjum, gráar kantlímdar borðplötur. Gott vinnupláss og góðir skápar, fallegar flísar á milli skápa. Mikil birta er í eldhúsinu frá stórum glugga sem snýr að garði.
Stofan er mjög björt með gluggum í þrjár áttir auk birtu frá eldhúsi. Gluggar snúa að garði auk svaladyra að vönduðum sólpalli í garði þar sem er gott skjól og góð grillaðstaða, ásmat blöndunartækjum og niðurfalli fyrir heitan pott. 
Herbergin eru tvö, fataskápur í öðru þeirra. Baðið er afar smekklega endurnýjað með fallegum flísum á gólfi og veggjum, göngusturtu, handklæðaofni, vegghengdu salerni og innréttingu undir vaski.
Viðarlitað harðparket er á alrými og herbergjum, flísar á forstofu og baði. Gólfhiti er í flestum rýmum nema hefðbundnir ofnar undir gluggum í herbergjum.
Í garði er 15 fermetra garðhús/geymsla með rafmagni sem tilheyrir íbúðinni en einnig er lítil geymsla innan íbúðar. Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni auk annarra sameiginlegra rýma. Búið er að ganga frá lögn fyrir rafmagn að bílastæði íbúðarinnar.
Húsið og íbúðin hafa almennt fengið gott viðhald, að sögn eiganda. Raflagnir voru endurnýjaðar og frárennsli fóðrað fyrir um 15 árum og allt gler endurnýjað fyrir 10 árum.

Mjög smekkleg og björt íbúð sem vert er að skoða.

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (43)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Furugrund 22
Skoða eignina Furugrund 22
Furugrund 22
200 Kópavogur
75.5 m2
Fjölbýlishús
312
833 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 2
Bílastæði
Hleðslustöð
Skoða eignina Naustavör 2
Naustavör 2
200 Kópavogur
88 m2
Fjölbýlishús
211
894 þ.kr./m2
78.700.000 kr.
Skoða eignina Drekadalur 9 - Íb. 203
Efsta hæð
Drekadalur 9 - Íb. 203
260 Reykjanesbær
63.1 m2
Fjölbýlishús
211
824 þ.kr./m2
52.000.000 kr.
Skoða eignina Brenniskarð 3
Skoða eignina Brenniskarð 3
Brenniskarð 3
221 Hafnarfjörður
88.4 m2
Fjölbýlishús
312
734 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin