DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 10. sept. 2026

Haukahlíð 10

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
65.3 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
71.900.000 kr.
Fermetraverð
1.101.072 kr./m2
Fasteignamat
31.600.000 kr.
SG
Svan Gunnar Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2025
2. hæð
Garður
Svalir
Fasteignanúmer
2532628
Landnúmer
223517
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Já
Byggingarstig
B1 - Byggingarleyfi

Nýtt í sölu - Haukahlíð 10, 102 Reykjavík - Íbúð 233. Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin verður afhent fullbúin í nóvember 2026 með fyrirvara um öryggisúttekt.

S8-Sameign: Verð íbúðar miðað við 25% sameign er 53,925,000. S8 ehf. sem byggingaraðili heldur eftir 25% af íbúðinni í 10 ár skv. sameignarsamningi sem er undirritaður samtímis og kaupsamningur.

Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, hafðu samband við Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltan fasteignasala í síma 697 9300 eða Gabríel Mána Hallson löggiltan fasteignasala í síma 772 2661 eða gabriel@miklaborg.is.

Á sölusíðu eignarinnar í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.

Vönduð og virðuleg 2ja herbergja íbúð á 2. hæð. Íbúðin snýr í austur. Birt stærð er 65,3 fm þar af 8,2 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í eldhús og stofu í opnu rými með útgengi á svalir, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum, gæðarraftækjum, vönduðum blöndunartækjum og sterku og vönduðu gólfefni. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Hlíð 1.

Nánari lýsing: Gengið er beint inn í bjart og vel skipulagt alrými, eldhús og stofu, með útgengi á svalir í austur. Góður fataskápur við inngang. Eldhúsinnrétting með fallegri hnotuáferð, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa og blöndunartæki úr burstuðu kopar/gulllituðu stáli. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Gott hjónaherbergimeð góðum fataskápum. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, innrétting með hnotuáferð og speglaskápur. Blöndunartæki á baði úr svörtu möttu stáli. Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 168 á teikningu. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang á leigu bílastæða.

Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, hafðu samband við Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltan fasteignasala í síma 697 9300 eða Gabríel Mána Hallson löggiltan fasteignasala í síma 772 2661 eða gabriel@miklaborg.is.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Bílakjallari undir Hlíðarhorni er ekki hluti af sameign og er skv. deiliskipulagi “samnýttur”. Kjallarinn verður rekinn óhagnaðardrifinn af rekstrarfélagi. Ákveðnar íbúðir í Hlíðarhorni hafa fengið úthlutað sérmerktum bílastæðum með föstum leigusamningum. Kaupendur þeirra íbúða gerast aðilar að rekstrarfélagi bílakjallara samfara kaupum á íbúð og geta þannig haft áhrif á rekstur kjallarans til framtíðar.

Á heimasíðu verkefnissins, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.

Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, hafðu samband við Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltan fasteignasala í síma 697 9300 eða Gabríel Mána Hallson löggiltan fasteignasala í síma 772 2661 eða gabriel@miklaborg.is.

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu Hlíðarhorns (sjá tengil að ofan), ásamt upplýsingum er varða hönnun og byggingu.

ATH: Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu byggingaraðila og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir úr íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Möðrufell 3
3D Sýn
Efsta hæð
Opið hús:06. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Möðrufell 3
Möðrufell 3
111 Reykjavík
79.1 m2
Fjölbýlishús
312
670 þ.kr./m2
53.000.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 37, Íb. 501
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:01. okt. kl 17:30-18:00
Hringhamar 37, Íb. 501
221 Hafnarfjörður
83.8 m2
Fjölbýlishús
312
895 þ.kr./m2
75.000.000 kr.
Skoða eignina Sigtún 35
Opið hús:05. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Sigtún 35
Sigtún 35
105 Reykjavík
91.4 m2
Fjölbýlishús
312
863 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Skoða eignina Bárusker 4B
Skoða eignina Bárusker 4B
Bárusker 4B
245 Sandgerði
78.6 m2
Fjölbýlishús
312
698 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin