Fasteignaleitin
Skráð 8. mars 2025
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Los Montesinos

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
157 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
73.800.000 kr.
Fermetraverð
470.064 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
104260424
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Stór verön og svalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*RÚMGÓÐ EINBÝLISHÚS Í NOTALEGUM SPÆNSKUM BÆ* 

Falleg, rúmgóð og vel hönnuð einbýlishús  með lokuðum garði, verönd út frá stofu, svölum á efri hæð og einkasundlaug í La Herrada/Los Montesinos, ekta spænskum bæ, um 30 mín akstur suður af Alicante. Þrjú eða fjögur svefnherbergi, þrjú baðherbergi, góð stofa, borðstofa og rúmgott eldhús.
Stórar svalir út frá svefnherbergi á efri hæð. Rúmgott útisvæði með góðri aðstöðu til að lifa og njóta.

Allar upplýsingar gefa
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is,
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali,  GSM 0034 615 112 869. berta@spanareignir.is
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 00354 777 4277. karl@spanareignir.is


Nánari lýsing:
Neðri hæð: Komið er inn í opið rými þar sem er stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými . Eitt eða tvö svefnherbergi  baðherbergi og auk þess þvottahús.  Útgengi út á verönd og sundlaugarsvæðið.
Efri hæð: Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Útgengi út á stórar svalir.
Stæði fyrir bíl inni á lokaðri lóð.
Einkasundlaug, sem tengist vel góðri verönd út frá stofu. Þar er gott pláss  t.d. til að borða úti eða njóta sólarinnar við sundlaugarbakkann.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  La Marquesa, og  La Finca, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas.

Ca. 10-15 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 15-20 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Los Montesinos er skemmtilegur ekta spænskur bær á Costa Blanca svæðinu, í góðu umhverfi með sjarmerandi hefðbundnu spænsku bæjarlífi, Fiestum og ýmsu skemmtilegu, verslunum og veitingastöðum. Ca. 20-30 mín. akstur í suður frá Alicante flugvellinum. Ca. 10 mín. akstur á tvo góða golfvelli, La Finca og La Marquesa, og ótal fleiri góðir golfvellir eru í innan við 20 mín akstursleið frá Los Montesinos.  Ciudad Quesada og Dona Pepa, eru stutt frá, vinsælir og líflegir bæir sem iða af mannlífi allt árið.
Þetta er því staðsetningin fyrir þá sem vilja upplifa ekta spænskt umhverfi, en njóta þæginda og þjónustu nútímans. Eins fyrir þá sem ætla að flytja alfarið til Spánar.

Verð frá:
Verð frá 509.000 evrum  + kostn. (ISK 73.800.000 + kostn. gengi 1Evra=145ISK.)

Innifalið í verði eru rafmagnstæki í eldhúsi, ofn, helluborð, vifta, ísskápur, uppþvottavélog þvottavél.
Einnig lýsing, bæði inni og úti.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra.
Mögulegt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum gegn aukagjaldi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: bílastæði,  air con, einkasundlaug, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Los Montesinos, La Herrada,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Dona Pepa
SPÁNAREIGNIR - Dona Pepa
Spánn - Costa Blanca
178 m2
Einbýlishús
423
404 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Spánn - Costa Blanca
112 m2
Einbýlishús
423
633 þ.kr./m2
70.900.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Dona Pepa
SPÁNAREIGNIR - Dona Pepa
Spánn - Costa Blanca
167 m2
Einbýlishús
423
431 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Lo Romero Golf
Bílskúr
SPÁNAREIGNIR - Lo Romero Golf
Spánn - Costa Blanca
127 m2
Einbýlishús
433
593 þ.kr./m2
75.300.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin