NÝLEGT EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ MEÐ BÍLSKÚR, HEITUM POTTI OG SKJÓLSÆLLI VERÖNDBaldur fasteignasali, beinn sími 450-0000, kynnir: Í einkasölu vandað og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Hólmabrún 7 í Hveragerði. Húsið er steinsteypt, byggt 2023 og búið netstýrðum gólfhita, loftræsingu með varmaendurvinnslukerfi og LED lýsingu með snjallstýringu. Í húsinu eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, lokanlegt sjónvarpsherbergi, tvö baðherbergi með sturtu og opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu. Úr stofu er útgengt á hellulagða verönd með heitum potti og skjólvegg.
Stærð eignarinnar er 207,40 fermetrar samkvæmt skráningu HMS, þar af er bílkúr 34,20 fermetrar.
Aðal sölupunktar:- Byggt 2023, steinsteypt hús á einni hæð
- Þrjú rúmgóð svefnherbergi, fataherbergi inn af hjónaherbergi
- Lokanlegt og hljóðdempað sjónvarpsherbergi
- Tvö baðherbergi, bæði með sturtu
- Opið alrými með eldhúsi, eyju, stofu og borðstofu
- Eldhúsinnrétting frá Axis með innfelldri uppþvottavél
- Gólfhiti í öllu húsinu með netstýranlegri Salus stýringu
- Loftræsikerfi með varmaendurvinnslu
- LED lýsing í öllu húsinu með snjallstýringu
- Hellulögð verönd með heitum potti og skjólvegg
- Rúmgóður bílskúr með geymslulofti
- Hiti í bílaplani
- Viðhaldslítið hús, steinað að utan, ál/tré gluggar
Húsið skiptist í forstofu, alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, sjónvarpsherbergi, þrjú svefnherbergi, fataherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og innbyggðan bílskúr.
Nánari lýsing:Forstofa: Flísar á gólfi.
Eldhús: Vönduð innrétting frá Axis með góðu skápaplássi og innfelldri uppþvottavél. Eyja með sætum aðskilur eldhús og stofu og á henni eru hitaþolnar flísar.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð í opnu rými með eldhúsi, stórum gluggum og útgengi á hellulagða verönd. Flísar á gólfi og hljóðdempandi dúkur í lofti.
Sjónvarpsherbergi: Lokanlegt með rennihurðum og vel hljóðdempað með dúk í lofti og veggklæðningu. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með fataherbergi inn af.
Svefnherbergi I: Rúmgott herbergi.
Svefnherbergi II: Rúmgott herbergi.
Baðherbergi I: Rúmgott með sturtu og glervegg, vegghengdu salerni og handklæðaofni. Útgengt er á skjólsæla verönd.
Baðherbergi II: Rúmgott með sturtu, innréttingu og vegghengdu salerni.
Þvottahús: Rúmgott með innréttingu, vaski og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Þaðan er aðgengi að geymslulofti.
Bílskúr: Rúmgóður bílskúr með geymslulofti.
Byggingarlýsing:Húsið: Steinsteypt hús með viðhaldslítilli steiningu að utan og gluggum úr áli og tré.
Þak: Bárujárn á lektum, tjörupappi á klæðningu og hefðbundin loftun. Húsið er vel einangrað.
Hiti og loftræsing: Gólfhiti er í öllu húsinu með Salus stýringu sem hægt er að stýra í gegnum netið. Nettengd loftræsing með varmaendurvinnslu um varmahjól. Flísar á gólfum skila hitanum frá gólfhitanum vel.
Lýsing: Öll ljós eru LED ljós með snjallstýringu.
Bílaplan: Hiti í bílaplani.
Lóð og verönd: Hellulögð verönd út frá stofu með heitum potti. Veröndin er afmörkuð með skjólvegg og þar er gott skjól fyrir flestum áttum. Garðurinn er þökulagður og í honum eru um 230 tré og runnar, meðal annars gljámispill, gullregn, birki, fura og reyniviður, auk tveggja blómakera.
Staðsetning: Hveragerði er vinsæll og fjölskylduvænn bær í um 40 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Í bænum eru grunnskóli, leikskólar, sundlaugin Laugaskarði og Hamarshöllin, og stutt er í náttúruperlur eins og Reykjadal og fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir.
Nýlegt og vandað einbýlishús á einni hæð með snjallstýringu, bílskúr og skjólsælli verönd með heitum potti. Hentar vel fjölskyldum og þeim sem vilja meira pláss og rólegra umhverfi stutt frá höfuðborgarsvæðinu.
Nánari upplýsingar veitir:Baldur Jezorski, löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000Skoða meðmæli -
Verðmat fasteigna -
Greiðslumat.is -
Að selja hjá Baldri