Fasteignaleitin
Skráð 4. sept. 2025
Deila eign
Deila

Háagerði 79

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
80.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
71.900.000 kr.
Fermetraverð
890.954 kr./m2
Fasteignamat
61.350.000 kr.
Brunabótamat
38.750.000 kr.
Mynd af Bjarný Björg Arnórsdóttir
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1961
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2034832
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
2003 skólp og dren endurnýjað
Gluggar / Gler
Þarfnast viðhalds að hluta
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Búið að samþykkja viðgerð á gafli sem liggur við Háagerði 79, múra og málun. Ekki komið í ferli. Sjá yfirlýsingu.
Verið er að kíkja á og lekaverja strompinn.
Gallar
Rakaskemmd í risíbúðinni sem fannst í vor uppi í horni á herbergi (veggur milli herbergis og eldhúss) sem gæti hafa gerst einhverntímann á síðustu 3 árum, uppþornað og engin merki um nýja bleytu. Líklegt að hafi gerst einhverntímann í miklu vatnsveðri og roki og líklegt að hafi komist inn hjá strompinum. Eftir að skoða það betur og hvort þurfi að þétta eitthvað þar.
Kvöð / kvaðir
Það eru ekki húsfélagsgjöld eða framkvæmdargjöld í lengjunni. Sum húsnúmer eru fleiri en ein íbúð og getur verið að það sé húsfélgasgjöld í þeim en ég er ekki með þær upplýsingar hjá mér. En það er hússjóður sem stendur í 347.000 kr. sem eru eftirstöðvar síðan síðustu framkvæmdir voru en þá borgaði hvert húsnúmer inn á reikninginn sína upphæð og svo var verktakanum borgað í einni greiðslu. 
 
Á síðasta húsfundi voru mikilvægar ákvarðanir teknar. Þar var ákveðið að hvert húsnúmer sjái um kostnað á viðgerð á sinni eign. Húseigendafélagið gerði samning fyrir okkur sem þarf að þinglýsa. Það er búið að vera töf á þessu vegna þess að það kom í ljós að það hafði gleymst að þinglýsa afsali á einni íbúð í lengjunni og er verið að vinna í því til að geta klárað þennan samning. 
Einnig var ákveðið að mála og merkja stæðin fyrir utan en þar eru 6 stæði og hvert húsnúmer á eitt stæði og svo er eitt auka stæði. En það komst ekki í verk í sumar en verður gert á næstunni. Einnig var ákveðið að það þyrfti að fara að skoða gaflana á húsinu en sá sem er 79 þarfnast viðhalds. Samþykkt var að húsfélagið myndi borga fyrir vinnu Húseigendafélagsins og á eftir að borga íbúum 77 fyrir þann kostnað en þeir hafa lagt út fyrir því.
 
Það eru nýbúnar framkvæmdir á húsi 71 og 73 svo er 77 að fara í framkvæmdir í haust eða næsta vor fer eftir hvenær verktakinn kemst í það. Þetta hafa allir borgað sjálfir enda búið að að gefa loforð fyrir þessu samkomulagi og allri eigendur samþykkir því.
RE/MAX & BJARNÝ BJÖRG KYNNA í einkasölu: 
Fallega 4ra herbergja íbúð í þríbýli, sameiginlegur inngangur með risi, útgengt úr stofu í stóran garð, stærð eignar er 80.7 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands.
Mjög spennandi mikið endunýjuð eign á góðum stað. 


Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Bjarný Björg Arnórsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 694-2526 eða á netfangið bjarny@remax.is


Lýsing eignar: 
Gengið er inn í sameiginlega forstofu með risi, flísar á gólfi og fatahengi. Þaðan er komið inn í hol og frá holinu er gengið inn í allar vistarverur íbúðarinnar. Eldhús er með góðri hvítri innréttingu, mjög fallegt útsýni í átt að Esju. Innaf eldhúsi er gengið inn í svefnherbergi sem er á teikningu borðstofa. Tvö önnur góð svefnherbergiStofan er rúmgóð og frá henni er gengið út á svalir með tröppum niður í mjög stóran garð.  Harðparket er á allri íbúðinni nema baðherbergi. Baðherbergi er með glugga, flísalagt í hólf og gólf, flísalögð sturta. Geymsla á jarðhæð fylgir íbúðinni.  Þvottahús í sameign. 

Endurbætur samkvæmt eldra söluyfirliti: 
2019 Jarðvegsskipt og bílastæði löguð, rafmagsrör sett við bílastæði til að koma upp hleðslustöðvum.
2018 nýjar flísar á forstofu / þakrennur endurnýjaðar 
2017 handrið á útitröppum endurnýjað / þakrennur endurnýjaðar / gólf flotuð, nýtt harðparket og hurðar 
2015 gluggar endurnýjaðir að hluta / ný hurð og gluggar í sameign. 
2003 skólp og dren endurnýjað 

Eignin er mjög miðsvæðis og stutt er í Skeifuna,  Kringluna, Borgarleikhúsið, Versló. Heilsugæslan er í Efstaleiti, ásamt þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis. Á Háaleitisbraut er verslunarkjarni með matvöruverslun, bakaríi, hárgreiðslustofu og apótek. Skólar í göngufæri eru grunnskólarnir Breiðagerðisskóli og Réttarholtsskóli og leikskólinn Jörfi, en 5 grunnskólar eru í hverfinu og 9 leiksskólar. Mjög gott útivistarsvæði er í hverfinu sem og íþróttastarf í Fossvoginum og Elliðarárdalnum. 


Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Bjarný Björg Arnórsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 694-2526 eða á netfangið bjarny@remax.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
__________________________

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
 
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
12/04/201938.950.000 kr.40.500.000 kr.80.7 m2501.858 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bústaðavegur 57
Bústaðavegur 57
108 Reykjavík
81.8 m2
Fjölbýlishús
312
916 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Espigerði 12
Skoða eignina Espigerði 12
Espigerði 12
108 Reykjavík
100.6 m2
Fjölbýlishús
413
721 þ.kr./m2
72.500.000 kr.
Skoða eignina Háaleitisbraut 39
Háaleitisbraut 39
108 Reykjavík
100.2 m2
Fjölbýlishús
412
698 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Gautland 21
Skoða eignina Gautland 21
Gautland 21
108 Reykjavík
85.2 m2
Fjölbýlishús
412
879 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin