DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 23. ágúst 2025

SPÁNAREIGNIR - Villamartin

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
164 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
54.900.000 kr.
Fermetraverð
334.756 kr./m2
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
101240226
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Þaksvalir
Upphitun
kæling / Hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *DRAUMAEIGN GOLFARANS* *PENTHOUSE ENDAÍBÚÐ MEÐ ÞAKSVÖLUM OG SJÁVARÚTSÝNI* *STÆÐI Í BÍLAKJALLARA OG GEYMSLA* *HÚSGÖGN FYLGJA* 

Nýleg og vönduð 4ra herbergja penthouse endaíbúð á besta stað í lyftuhúsi í Villamartin golfparadísarsvæðinu, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. 3 svefnherbergi með fataskápum og 2 baðherbergi. Rúmgott eldhús opið við stofu, útgengt á 13 fm svalir frá stofu en einnig eru 74 fm sér þaksvalir. Glæsilegur sameiginlegur sundlaugargarður. Stæði í bílakjallara og stór geymsla. Einnig geymsla innan íbúðar.

Eignin er nýleg og afhendist fullbúin vönduðum húsgögnum. Gengið er inn um sérinngang í forstofu. Rúmgott eldhús með góðu skápaplássi. Eldhús er útbúið gæða tækjum, innfeldur vaskur og filter á vatninu. Frá eldhúsi er gengið inn í þvottahús. Eldhús er skemmtileg opið við stofu og borðstofu, og frá stofu er rennihurð út á 13 fm svalir með morgunsól og markísu. Svefnherbergin eru þrjú, öll með fataskápum og stærsta svefnherbergið er með sér baðherbergi. Bæði baðherbergin eru flísalögð, með góðri innréttingu og sturtu. Geymsla er innan íbúðar en einnig er rúmgóð geymsla í bílakjallara. Miðstýrt innfelt loftræstikerfi er innan íbúðar sem hægt er að nota bæði til að kæla og hita

Eigninni fylgir 74 fm sér þakverönd. Þar er stórglæsilegt útsýni til sjávar og yfir sundlaugargarðinn. Þar sem eignin er staðsett við enda hússins er mikið næði og hægt að njóta sólarinnar frá morgni til kvölds. Á þaksvölum er einnig markísa, ásamt vatnstengi / sturtu og væri auðvelt að gera útieldhús á svölunum. 

Eigninni fylgir vel staðsett og rúmgott stæði í lokuðum bílakjallara, ásamt rúmgóðri geymslu með mikilli lofthæð sem staðsett er beint á móti stæðinu, og gengur lyftan alla leið niður. 

Um er að ræða best staðsettu eignina í þessu fallega húsi og einstakt tækifæri til að eignast penthouse íbúð í hjarta Orihuela Costa í göngufæri við verslanir, veitingastaði og golfvelli. 

Allar upplýsingar veita:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. Sími 0034 615 112 869
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. Sími 893 2495

Stutt í La Fuente verslunar og veitingahúsakjarnann, Mercadona matvöruverslunina og í La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina. Örstutt á frábæra golfvelli, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Las Colinas og ótal fleiri. El Limonar, einn besti alþjóðlegi einkaskólinn á svæðinu er örstutt frá. Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is


Eiginleikar: nýleg eign, sameiginlegur sundlaugargarður, útsýni, air con, bílastæði, þakverönd, sér garður, golf, 
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
101240226

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Háholt 4
Bílskúr
Opið hús:24. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Háholt 4
Háholt 4
840 Laugarvatn
132.5 m2
Parhús
413
490 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Engjavellir 5A
Opið hús:22. mars kl 13:00-13:30
Skoða eignina Engjavellir 5A
Engjavellir 5A
221 Hafnarfjörður
87 m2
Fjölbýlishús
413
803 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Lokastígur 7
Opið hús:22. mars kl 14:00-14:30
DJI_0487.JPG
Skoða eignina Lokastígur 7
Lokastígur 7
101 Reykjavík
53.8 m2
Fjölbýlishús
211
965 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Skoða eignina Fossvegur 4
Bílskúr
Skoða eignina Fossvegur 4
Fossvegur 4
800 Selfoss
92.6 m2
Fjölbýlishús
312
647 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin