RE/MAX og Oddur fasteignasali kynna í einkasölu: Falleg þriggja herbergja kjallaraíbúð á besta stað í teigunum í Laugardal. Íbúðin er skráð 79,8fm þar af geymsla 3,6fm. Íbúðin er alveg við Laugardalslaug og Laugar World Class og stutt er í bæði leikskóla og grunnskóla.
** Íbúðin er laus við kaupsamning**Allar nánari upplýsingar veitir Oddur í síma 782-9282 eða á oddur@remax.is
Smelltu hér til að skoða eignina í 3-D
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent beint af vef remax.isNánari lýsing:Forstofa: flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: parket á gólfi og góður fataskápur.
Svefnherbergi: parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf, walk-in sturta og upphengt salerni.
Stofa, eldhús og borðstofa: eru í sameiginlegu opnu rými með parketi á gólfi. Eldhús er með hvítri háglans innréttingu frá Friform, bakaraofni í vinnuhæð span helluborði og nýlegum háf. Einnig er innbyggð uppþvottavél sem fylgir. Útgengt úr stofu á litla verönd sem er afar skjólgóð.
Geymsla er í sameign, 3,6fm.
Íbúðin var öll mikið endurnýjuð nýlega og húsið í góðu standi. Búið að endurnýja þak, skólp, dren, útidyrahurð og svalahurð. Veröndin var nýlega sett upp á sérafnotareit íbúðar. Í sameign er góð geymsla sem er skráð 3,6 fm og stórt sameiginlegt þvottahús. Stór sameiginlegur gróin garður og hellulagt fyrir framan hús.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk