DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 26. nóv. 2026

Skólastígur 9

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
120 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
87.900.000 kr.
Fermetraverð
732.500 kr./m2
Fasteignamat
53.100.000 kr.
Brunabótamat
65.700.000 kr.
Byggt 1947
Jarðhæð af 3
Garður
Pallur
Baðkar
Sérinng.
Fasteignanúmer
2150495
Landnúmer
149377
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki skoðað af fasteignasala.
Raflagnir
Endurnýjað að mestu.
Frárennslislagnir
Ekki skoðað af fasteignasala.
Gluggar / Gler
Gott svo vitað sé
Þak
Ekki skoðað af fasteignasala.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd sem snýr til suðurs
Lóð
39,89
Upphitun
Hitaveita - Ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir

 
Gallar
Ath, ekki eru til samþykktar teikningar af breytingum þar sem eldhús var fært á milli rýma.
Kasa fasteignir 461-2010.

Kasa fasteignir kynna Skólastíg 9 á Akureyri – fallega, mikið endurbætta 5 herbergja sérhæð með sérinngangi í þríbýlishúsi. Íbúðin er með fjórum svefnherbergjum, nýlegu eldhúsi með borðaðstöðu og stofu með útgengi á timburverönd. Heildarstærð eignarinnar er 120 fm, þar af er hæðin 110,3 fm og tvær sérgeymslur í kjallara samtals 9,7 fm. Stutt er í grunn- og framhaldsskóla, Sundlaug Akureyrar og líkamsrækt.

Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús með borðstofu, stofu, fjögur svefnherbergi og baðherbergi. Í kjallara eru tvær sérgeymslur ásamt sameiginlegu þvottahúsi og öðru sameiginlegu rými.


Forstofa og gangur: Sérinngangur er í flísalagða forstofu með fatahengi. Á gangi er hvítlakkað eikarparket sem einnig er á gólfi í eldhúsi, borðstofu, stofu og þremur svefnherbergjanna.
Eldhús og borðstofa: Eldhúsið var fært í fyrrum setustofu árið 2025 og þar er nú eldhús og borðstofa í opnu rými. Eldhúsinnréttingin er með frontum frá Haf Store og Dekton-borðplötu frá REIN. Vaskur og blöndunartæki eru einnig frá REIN. Samhliða breytingunum voru lagðar nýjar vatnsleiðslur frá kjallara upp í eldhúsið.
Stofa: Stofan er í sér rými þar sem áður var borðstofa. Úr stofunni er gengið út á timburverönd.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru fjögur. Hjónaherbergið er rúmgott og þar er nýr fataskápur. Fjórða herbergið er innréttað sem barnaherbergi þar sem eldhúsið var áður og er með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Á baðherberginu er hvít innrétting og baðkar. Flísar eru á gólfi og hluta veggja og opnanlegur gluggi.

Aðrar endurbætur á íbúðinni
- Skipt var um rofa og tengla í allri íbúðinni og valin Berker Serie 1930 línan. Ljósstyrk má stilla í eldhúsi, borðstofu og stofu.
- Hurðir og listar hafa verið lakkaðir, gólflistar endurnýjaðir og loft og veggir máluð á árunum 2025 og 2026.
- Að sögn eigenda var mestöll vinna innan íbúðarinnar unnin af fagmönnum og öll vinna sem tengdist sameign hússins.

Viðhald hússins að sögn eigenda
Ytra byrði og gluggar. Húsið var heilsparslað og málað árið 2023. Sama ár var skipt um glugga og gler í geymslum og á sameiginlegum stigagangi.
Þak og þakrennur. Húsasmíðameistari og byggingariðnfræðingur yfirfóru þakið í október 2025. Við skoðunina var það metið vatnshelt. Ráðlagt var að skipta lausum nöglum út fyrir þakskrúfur og gera við einstaka ryðbletti. Ný þakrenna var sett á norðurhlið hússins árið 2026.
Tröppur. Tröppur hússins voru múraðar haustið 2026.
Skólplagnir og dren. Skipt var um skólplagnir sunnan húss árið 2016 og norðan húss í tveimur áföngum, árin 2020 og 2022. Að sögn eigenda hafa allar skólplagnir frá húsinu út í götu verið endurnýjaðar. Dren norðan húss var skoðað við framkvæmdirnar árið 2022 og reyndist þá í lagi á þeim hluta sem var skoðaður.

- Frábær staðsetning miðsvæðis á Akureyri.
- Brekkuskóli, Menntaskólinn, Sundlaug Akureyrar allt í 2 mín fjarðlægð frá eigninni.
- Gróinn garður.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/01/202546.800.000 kr.55.000.000 kr.120 m2458.333 kr.Já
26/07/202131.250.000 kr.40.500.000 kr.120 m2337.500 kr.Já
17/07/201721.350.000 kr.33.000.000 kr.120 m2275.000 kr.Já
17/09/201316.200.000 kr.17.000.000 kr.120 m2141.666 kr.Nei
16/11/200916.680.000 kr.21.800.000 kr.120 m2181.666 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Kasa Fasteignir
http://www.kasafasteignir.is

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lynghólar 34
Skoða eignina Lynghólar 34
Lynghólar 34
210 Garðabær
140 m2
Hæð
624
957 þ.kr./m2
134.000.000 kr.
Skoða eignina Efstaleiti 11
Bílastæði
Skoða eignina Efstaleiti 11
Efstaleiti 11
103 Reykjavík
100,3 m2
Fjölbýlishús
312
886 þ.kr./m2
88.900.000 kr.
Skoða eignina Básbryggja 15
Skoða eignina Básbryggja 15
Básbryggja 15
110 Reykjavík
124,6 m2
Fjölbýlishús
413
681 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 (104)
Opið hús:29. nóv. kl 14:00-14:30
vorbraut14.jpg
Vorbraut 14 (104)
210 Garðabær
115,6 m2
Fjölbýlishús
322
864 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin