DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 22. feb. 2026

Brekkuland 8

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
232.5 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
159.500.000 kr.
Fermetraverð
686.022 kr./m2
Fasteignamat
141.950.000 kr.
Brunabótamat
101.300.000 kr.
Mynd af Finnbogi Kristjánsson
Finnbogi Kristjánsson
Lögg. fasteigna- skipa og fyrirtækjasali. Lögg. leigumiðlari
www.fron.isEignalisti
Garður
Bílskúr
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2083172
Landnúmer
124263
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Í vestur
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Einbýlishús við Brekkuland 8 í Mosfellsbæ. Húsið er á tveimur hæðum, með stórum sérstæðum bílskúrum/vinnurýmum. Húsið er staðsett á rólegum stað fyrir ofan Álafosskvosina. Í heild er húsið, með skúrum 277,5 fm. Þar af er 60,2 fm bílskúr, byggður 1985, og 45 fm nýbyggð vinnustofa, árið 2025. Íbúðarhúsið er 172,3 fm. Rúmgóð,1.422 fm eignarlóð.

Húsið er byggt úr timbri, frá árinu 1982.
Það er vel skipulagt og samanstendur meðal annars af
fimm herbergjum, eldhúsi, þvottahúsi, búri, sjónvarpsholi, bjartri stofu og borðstofu.
Útgengt er út á sólpall í suðvestur
. Lóðin er afgirt, skipt upp með „hundagirðingu“. Á lóðinni stendur
lítill hænsnakofi, sunnanmegin, með netbyrgi fyrir hænsnin. Há tré eru í garðinum sem eru
hæfilega staðsett, þannig að ekki er um birtuskerðingu að ræða. Leiktæki eru í garðinum og
sandkassi. Stórt malbikað bílaplan fyrir framan bílskúra. (4x bílastæði).

Eignin er einstaklega vel staðsett innan hverfisins með óbyggðu svæði bak við hús.
Gott útsýni í flestar áttir. Róleg, barnvæn staðsetning í rótgrónu hverfi (Álafosshverfið). Hentar vel fyrir
fjölskyldufólk með hunda
léttan iðnað eða listafólk, með föndur heima við. Leyfi fyrir
hænsni á lóð. Möguleiki að leigja út annan bílskúrinn. 

Nánari lýsing:
Gengið er frá götu, meðfram húsinu, á milli bílskúrs og húss, að aðalinngangi hússins.
Anddyri, inn í neðri hæð húss, sem er flísalagt með fataskáp og fatahengi.
Gestasnyrting með sturtuklefa og klósetti, inn af anddyri. Það er flísalagt.
Miðgangrými/hol með harðparket á gólfi. Þar er vegghengdur skenkur. Á móti er gengið upp
stiga á efri hæð.
Forstofuherbergi, notað sem skrifstofa í dag með harðparketi.
Stofan
er þar næst, má skipta í tvö rými, með harðparketi á gólfi. Gengið þaðan út á sólpall/verönd í suð-vestur.
Við enda verandar, sunnan megin, er heitur pottur með skjólveggjum í kring. Ganga má þaðan út í garð í suður.
Bjart eldhús er í austurhluta húss, með viðarinnréttingu, með flísum á milli skápa. Span helluborð með viftu fyrir ofan og bökunarofni fyrir neðan. Borðstofukrókur er frekar stór. Pláss er fyrir tvöfaldan ísskáp.

Þvottaherbergið er frekar rúmgott, með máluðu steingólfi. Þar eru innréttingar og skápar.
Inn af því er búr með hillum og góðu hilluplássi. Frá þvottahúsi er smá bíslag með fataskáp.
Hægt er að ganga þaðan út í bakgarð.

Efri hæð:
Notaleg stofa er í miðrými með parketi á gólfi. Þar er kvistgluggi í suður með útsýni yfir bæinn.
Baðherbergi með flísum á gólfi og hluta á veggjum, innréttingar, baðkar, gluggi.
Hjónaherbergi snýr í suðvestur, með parketi á gólfi og ágætum fataskápum. Þar er útgengi út á stórar suðvestursvalir með útsýni. Við hliðina er er eitt vinnuherbergi/svefnherbergi með fataskápum. Er í dag notað sem skrifstofa.
Í austurenda eru tvö svefnherbergi með parketi á gólfi. Annað þeirra er með fataskáp.

Húsið er byggt með kraftsperrum og er efri hæðin að hluta undir súð, sem þýðir að gólfrými er meira en fermetratalan segir til um.

Rúmgóður 60 fm bílskúr með öflugri bílalyftu. Þar er góð vinnuaðstaða. Tvær bílskúrshurðir. Önnur hurðin er dregin upp en hin hurðin er með gluggum og opnast til hliðar. Sérinngangur á hlið í skúrinn. Um 8 fm geymsluskúr er bakvið bílskúr.
Um 45 fm vinnustofa með bílskúrshurð að framan og gengið út í bakgarð um sér hurð að aftan. Hlaðinn veggur frá honum í bakgarði. Það er mikið pláss á lóð og niður með að austanverðri lóðinni, sem er „hlutlaust rými“ í eigu bæjarins og er opið við lóðina.

Lóðin snýr vel að sólarátt og þaðan er gott útsýni. Er afgirt og góður leikvöllur fyrir börn. Rými fyrir trampólín, hænur og hunda. „Sannkölluð sveit í borg“. Stutt er í alla þjónustu, s.s. skóla, sund og verslanir. 
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/09/201970.800.000 kr.83.000.000 kr.232.5 m2356.989 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1985
60.2 m2
Fasteignanúmer
2083172
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
19.700.000 kr.

Myndir (38)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dimmuhvarf 19
Bílskúr
Skoða eignina Dimmuhvarf 19
Dimmuhvarf 19
203 Kópavogur
262.1 m2
Einbýlishús
524
954 þ.kr./m2
250.000.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarhjalli 43
Hlíðarhjalli 43
200 Kópavogur
294 m2
Einbýlishús
725
Fasteignamat 169.050.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Stekkholt 20
Bílskúr
Skoða eignina Stekkholt 20
Stekkholt 20
750 Fáskrúðsfjörður
238.5 m2
Einbýlishús
624
324 þ.kr./m2
77.300.000 kr.
Skoða eignina Bollastaðir 1
Bílskúr
Skoða eignina Bollastaðir 1
Bollastaðir 1
276 Mosfellsbær
195.2 m2
Einbýlishús
514
768 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin