Fasteignasalan TORG kynnir :
Afar glæsileg 136,9fm þriggja herbergja íbúð á sjöttu hæð ásamt stæði í bílageymslu merkt : C15. Íbúðin er 127,1fm ásamt 9,8fm geymslu. Eignin skiptist í forstofu, gestasalerni, mjög rúmgóða stofu og borðstofu, eldhús, tvö góð herbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Innbyggður kæliskápur og uppþvottavél í innréttingu. EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is
NÁNARI LÝSING : Forstofa með skápum upp í loft, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa : mjög rúmgóðar með gluggum til suðurs og vestur, parket á gólfi, útgengt út á suð/vestur svalir. Fallegt útsýni. (Stofan var stækkuð á kostnað þriðja herbergisins).
Eldhús : Glæsileg innrétting frá NOBILIA & GKS með vönduð eldhústæki af gerðinni Siemens. Innfellt span helluborði með innbyggðum gufugleypi af vönduðustu gerð. Tveir ofnar, annar hefðbundin blástursofn og hinn "combi" ofn. Kvarts steinn á borðum.
Þvottahús : innaf eldhúsi með innréttingum og flísum á gólfi.
Hjónaherbergi : með miklu skápaplássi, parket á gólfi.
Svefnherbergi : með skáp, parket á gólfi.
Baðherbergi : mjög rúmgott með stórri innréttingu, kvarts borðplata, walk in sturtu, innbyggð tæki, handklæðaofn, hiti í gólfi, flísar á veggjum og gólfi.
Bílastæði : merkt C15 og er með bílhleðslustöð.
Sameign : Mikið lagt í frágang í anddyri og í sameign hússins þar sem leitast er við að skapa jákvæða upplifun. Mjög vandaðar flísar frá Porcelanosa og útfærsla með ýmsum sérlausnum. Anddyri kynnt með gólfhita. Vandaðar merkingar þar sem unnið er með gylltar merkingar á dökkum flötum. Mikið lagt upp úr hljóðvist og frágangi í loftum og veggjum. Vönduð handrið í stigahúsum með gylltri áferð.
Inngangshurðir dökkar með hliðarspjaldi sem slökkvari og merking eru innfelld. Lyklalaust aðgegni frá íbúð í bílgeymslu og í gegnum anddyri. Aðgengi bílgeymslu með myndavélakerfi sem les bílnúmer.
Allar íbúðir er búnar loftræstisamstæðu með sér innktaki og útkasti. Umframgæði sem tryggja mjög góð loftskipti og góða nýtingu á varma. Allt innlagnarkerfi er frá GIRA og mynddyrasími með skjá og tengjanlegur við Wifi. Glæsileg heimilistæki frá Smith & Norland af gerðinni Siemens.Ofnar af gerðinni IQ500 studioLine úr “black steel” vörulínu Siemens. Klæðanlegur kæli- og frystiskápur með “no Frost” tækni þar sem affrysting er óþörf. Uppþvottavél og helluborð tengjanleg við WiFi. Allar innréttingar í eldhúsum, baðherbergjum ásamt fataskápum í herbergjum og forstofum eru frá NOBILIA OG GKS. Aukin lofthæð og innihurðir sprautulakkaðar og hærri en almennt gerist (hæð um 230 cm).
Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is