DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 5. okt. 2026

Lynghólar 34

HæðHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
140 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
134.000.000 kr.
Fermetraverð
957.143 kr./m2
Brunabótamat
88.050.000 kr.
Byggt 2019
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
25033701
Húsgerð
Hæð
Inngangur
Sérinngangur

ALDIR Fasteignir og Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 8200 / sveinn@aldirfasteignir.is kynna í einkasölu:
Um er að ræða vel skipulagða og bjarta 140 fm efri sérhæð í tvíbýlishúsi á þessum frábæra stað við Lynghóla í Garðabæ.
Sérinngangur er í íbúð af opnum svalapalli, rúmgóðar suður-svalir, viðhaldslítil húseign, góð bílastæði framan við hús.
Aukin lofthæð í allri íbúð, tvö baðherbergi og fjögur svefnherbergi.
Eignin er á vinsælum stað í Garðabæ þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, þjónustu, samgöngur, verslanir, íþróttar og útivistarsvæði.


Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 140 fm merkt 01-02-01.
Sameiginleg hjóla/vagnageymsla er frístandandi við bílastæði og er merkt 02-01-01 alls 8.1 fm. 

Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@aldirfasteignir.is

Eignin skiptist í: 
Forstofu, hol/gang, stofu/borðstofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi og geymslu innan íbúðar.
Sameiginleg hjóla/vagnageymsla á lóð við bílastæði.

Nánari lýsing:
Sérinngangur er í íbúð að opnum svölum og er komið inní rúmgóða forstofu með innbyggðum fataskápum, eitt svefnherbergi er innaf forstofu.
Hol/gangur þaðan sem að gengið er í önnur rými íbúðar og er ágætis aðstaða þar fyrir tölvuaðstöðu.
Stofa/borðstofa renna saman í opið skemmtilegt rými og er útgengt á suð-austur svalir úr stofu.
Eldhús er inndregið við enda borðstofu, snyrtileg hvít eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum, innfellt AEG helluborð í borðplötu og eldhúsvaskur yfirfelldur, innbyggð uppþvottavél í innréttingu, tveir AEG ofnar eru í eldhúsi og þá er gert ráð fyrir einföldum ísskáp í innréttingu sem að hægt er að fá keyptan með íbúð. Vandaðar innréttingar steinn í borðplötu, innfellt helluborði, gufugleypi og tveimur ofnum.
Svefnherbergin eru fjögur og eru fataskápar í öllum herbergjum sem að ná uppí loft, herbergin eru öll rúmgóð. 
Tvö baðherbergi eru í íbúð og er opnanlegur gluggi á báðum baðherbergjum.
Aðalbaðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum uppí loft, snyrtileg innrétting með skápum undir baðvask og speglaskápur á vegg, baðkar, upphengt salerni.
Hitt baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum uppí loft, Walk-in sturtuklefi með glerskilrúmi, snyrtileg innrétting með skápum undir baðvask og speglaskápur á vegg, upphengt salerni og á þessu baðherbergi er innrétting þar sem að gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla íbúðar er innaf holi þegar komið er inn í íbúð og er opnanlegur gluggi á geymslu.
Gólfefni: Harðparket og fallegar flísar á gólfum eignar.

Vandað hús með vönduðum innréttingum, tækjum og gólfefnum.
Fimm bílastæði tilheyra húseigninni, tvö fyrir hvora íbúð og eitt gestastæði.

Stutt er í skóla, leikskóla, þjónustu, stofnbrautir og útivistarsvæði.
Mikið af frábærum göngu- og hjólaleiðum í nágrenninu. Garðaskóli og Flatarskóli í göngufæri.

-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@aldirfasteignir.is

 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vetrarbraut (íb.104) 2
Bílastæði
Opið hús:07. okt. kl 12:30-13:00
Vetrarbraut (íb.104) 2
210 Garðabær
144,3 m2
Fjölbýlishús
423
900 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 4 (313)
Bílastæði
Opið hús:07. okt. kl 12:30-13:00
Vetrarbraut 4 (313)
210 Garðabær
126,3 m2
Fjölbýlishús
413
933 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2 (209)
Bílastæði
Opið hús:07. okt. kl 12:30-13:00
Vetrarbraut 2 (209)
210 Garðabær
127,8 m2
Fjölbýlishús
413
938 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Hringbraut 120
Bílastæði
Heitur pottur
Skoða eignina Hringbraut 120
Hringbraut 120
101 Reykjavík
153 m2
Fjölbýlishús
323
1143 þ.kr./m2
174.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin