DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 1. okt. 2026

Móstekkur 8b

FjölbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
127.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
81.000.000 kr.
Fermetraverð
636.792 kr./m2
Fasteignamat
72.600.000 kr.
Brunabótamat
73.900.000 kr.
Byggt 2023
Jarðhæð af 2
Garður
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2524327
Landnúmer
230307
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Nýlegt
Raflagnir
Nýlegt
Frárennslislagnir
Nýlegt
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
Nýlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gimli fasteignasala og Elín Urður Hrafnberg kynna: Vandaða og flotta 4ra herbergja íbúð á jarðhæð við Móstekk 8b á Selfossi.

Húsið er hannað af TEARK arkitektum þar sem fágað útlit, gæði og notagildi skapa eina heild. Lóðin umhverfis húsið er hönnuð af landslagsarkitektinum Hermanni Ólafssyni en á lóð fylgir hverri íbúð sér bílastæði þar sem gert er ráð fyrir hleðslustöð.
Húsið er fjórbýli á tveimur hæðum staðsteypt, einangrað og klætt að utan með vandaðri ál utanhússklæðningu og á þaki, sem er einhalla, er soðinn tjörupappi. Einnig er sameign á jarðhæð tæknirými/hjólageymsla.
Svæðaskiptur gólfhiti með digital stýringum, harðparket og flísar á votrýmum. Gluggar eru vandaðir ál/tré frá IDEAL.
llir innveggir eru annarsvegar steyptir burðarveggir og hinsvegar hlaðnir milliveggjasteini úr léttsteypu.
Í loftum er dúkaloft með innfelldri Led lýsingu en dúkurinn skapar góða hljóðvist í íbúðinni .
Lóð, fullfrágengin, gras, gróður, leiktæki, hellulagðar/steyptar stéttar og malbikað bílaplan með 27 bílastæðum. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla á jarðhæð.


Eignin Móstekkur 8 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 252-4327, birt stærð 127.2 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-02, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Nánari upplýsingar veitir: Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, tölvupóstur elin@gimli.is eða gimli@gimli.is

NÁNARI LÝSING:
Forstofa: er rúmgóð með innbyggðum fataskáp.
Gangur: með parketi á gólfi.
Eldhús/stofa: eru í alrými með góðri lofthæð og fallegum stórum gluggum, sérsmíðuð dökk elhúsinnrétting með hvítum efri skápum frá Voké-III með ljúflokur á öllum skúffum og skápum ásamt innbyggðri ledlýsingu undir efri skápum í eldhúsi. Ljós borðplata, heimilistæki eru frá AEG. Innbyggður ísskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél og eyja með spanhelluborði. Stofan er björt og með útgengi út á sólpall. Séreignarflötur er við sólpall.
Þvottahús: með góðri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: með parketi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi#2: með parketi og fataskáp.
Svefnherbergi#3: með parketi og fataskáp.  
Baðherbergi: er mjög rúmgott flísalagt í hólf og gólf, mjög góðri innréttingu með vaski, speglaskápum fyrir ofan, handklæðaofni, og "walk inn" sturtu með innbyggðum blöndunartækjum.
Geymsla: sérgeymsla í sameign með hurð út í séreignaflöt.
Vagna og hjólageymsla er í sameign.

Niðurlag:
Virkilega flott íbúð, í vönduðu húsi þar sem skipulag, frágangur, efnisval og innréttingar eru til fyrirmyndar. Húsið er í göngufæri við Stekkjaskóla.

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/12/202355.550.000 kr.78.900.000 kr.127.2 m2620.283 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Gimli fasteignasala
http://www.gimli.is

Myndir (45)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Austurhólar 2
Skoða eignina Austurhólar 2
Austurhólar 2
800 Selfoss
80.1 m2
Fjölbýlishús
312
710 þ.kr./m2
56.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 11
Opið hús:04. okt. kl 14:45-15:15
Leifsgata24_aðalmynd.jpg
Skoða eignina Vorbraut 11
Vorbraut 11
210 Garðabær
123.6 m2
Fjölbýlishús
413
930 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Ánanaust 3 (104)
Opið hús:04. okt. kl 13:00-13:30
2.jpg
Ánanaust 3 (104)
101 Reykjavík
107.6 m2
Fjölbýlishús
312
881 þ.kr./m2
94.800.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 41 (103)
Opið hús:04. okt. kl 13:00-13:30
v1 103.jpg
Mýrargata 41 (103)
101 Reykjavík
126.4 m2
Fjölbýlishús
312
886 þ.kr./m2
112.050.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin