Eignamiðlun auglýsir 2ja - 4 herbergja íbúðir í nýbyggingu við Grásteinsmýri 3, 225 Álftanesi. Um er að ræða 21 íbúðir, stærðir frá 62,3 fm - 130,9 fm. Afhending íbúða er áætluð í desember 2026. Sýnum daglega, bókið skoðun hjá sölumanni.
Nánari upplýsingar veitir: Gunnar Bergmann löggiltur fasteignasali í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.isÍbúð merkt 302 - 3ja herbergja 97,8 fm íbúð á þriðju hæð með tveim svefnherbergjum og rúmgóðum svölum. Rúmgott svefnherbergi og minna barnaherbergi, baðherbergi flísalagt með góðum sturtuklefa, eldhús opið inn í borðstofu og stofu. Sér þvottahús innaf eldhúsi með gólfhita. Næg bílastæði fylgja húsinu á lóðinni. Virkilega vel skipulögð íbúð.
Heimasíða fyrir verkefnið
smellið hér Nánari lýsing:
Komið er inn forstofu með fataskápum.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtuklefa. Handlaug, handklæðaofn og upphengt salerni. Flísar á gólfum og veggjum.
Eldhús: Eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi frá Axis. Ofn í vinnuhæð, góð vinnuaðstaða. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél frá AEG. Þvottahús inn af eldhúsi.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi. Barnaherbergi með skápum.
Stofa/ borðstofa: Rúmgóð setustofa og borðstofa opið inn í eldhús. Gengið er út á svalir út frá stofu, stór rennihurð.
Geymsla í kjallara hússins er 7,3 fm.
Íbúðirnar verða afhentar án gólfefna, nema á votrýmum sem verða flísalögð. Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - gunnarbergmann@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.