Til leigu vandað 162 m² skrifstofu-/ verslunarhúsnæði á jarðhæð að meðtalinni hlutdeild í sameign við Katrínartún. Laust fljótlega
Nánari lýsing: Rýmið skiptist upp í opið sýningar-/ vinnurými, kaffiaðstöðu og Wc. Mikil lofthæð. Mattslípaðar granítflísar á gólfi. Vönduð DELTA - lýsing í loftum. Vélræn loftræsting og rafmagnsopnun á gluggum. Tvö bílastæði í bílageymslu fylgja og aðgengi er að sameiginlegum búningsklefum, sturtum og hjólageymslu í sameign. VSK leggst við leigufjárhæðina.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali í síma 897 7086 tölvupóstur hmk@jofur.is