DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 23. ágúst 2026

Úlfarsbraut 46

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarholt og Úlfarsárdalur-113
272.4 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
138.900.000 kr.
Brunabótamat
149.700.000 kr.
Mynd af Katla Hanna Steed
Katla Hanna Steed
Lögg. fasteignasali
Byggt 2019
Garður
Svalir
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2328327
Landnúmer
205718
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar svalir
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita / gólfhiti
Inngangur
Margir inngangar
Rúmgott einbýlishús við jaðar byggðarinnar með aukaíbúð, bílskúr og útsýni – Úlfarsbraut 46
Katla Hanna Steed, löggiltur fasteignasali, og Háborg fasteignasala kynna 272,4 m² einbýlishús á tveimur hæðum við Úlfarsbraut 46 í Úlfarsárdal. Þar af er 45,1 m² bílskúr. Í húsinu er jafnframt aukaíbúð sem er í útleigu og skilar uppgefnum leigutekjum.
Húsið er teiknað af Davíð Kr. Pitt arkitekt og einkennist af opnum rýmum, stórum gluggum og sjónsteypuvegg sem setur svip á aðalrýmið.
Eignin er ekki fullkláruð og býður því upp á tækifæri fyrir næstu eigendur til að móta lokafrágang eftir eigin þörfum og áherslum.
  • 272,4 m² einbýlishús á tveimur hæðum
  • 45,1 m² bílskúr
  • Aukaíbúð með sérinngangi og leigutekjum
  • Opið aðalrými með sjónsteypuvegg og stórum gluggum
  • Glæsilegt útsýni
  • Tvennar stórar svalir og útisvæði þar sem gert er ráð fyrir heitum potti
  • Mikið geymslupláss undir þaki sem er ekki skráð í fermetratölu eignarinnar
  • Makaskipti á minni eign koma til greina
Hér er á ferðinni rúmgott fjölskylduhús með aukaíbúð, leigutekjum, miklu geymsluplássi og útsýni. Eignin býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika og tækifæri fyrir næstu eigendur til að ljúka þeim frágangi sem eftir stendur í samræmi við eigin þarfir og smekk.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Katla Hanna Steed, löggiltur fasteignasali, í síma 822 1661 eða á katla@haborg.is.
Nánari lýsing
Forstofa og inngangur:
Aðalinngangur hússins er á neðri hæð. Komið er inn í forstofu með góðu skápaplássi og þaðan í hol sem tengir saman rými neðri hæðar. Frá holinu liggur stigi upp á efri hæð.
Neðri hæð:
Á neðri hæð er rúmgott herbergi, geymslurými, þvottahús, ófullgert baðherbergi og bílskúr. Innangengt er úr aðalhluta hússins í bílskúrinn. Útgengt er í garð bæði úr þvottahúsi og herbergi.
Efri hæð:
Gengið er upp á efri hæðina þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda samfellt alrými. Sjónsteypuveggur í miðju hæðarinnar setur svip á rýmið og skilur að eldhús og stofu án þess að loka á milli þeirra.
Stórir gluggar á fleiri en eina hlið hleypa inn birtu og bjóða upp á víðsýni í ólíkar áttir. Úr eldhúsi og stofu er útsýni yfir Grafarholt og víða yfir byggð Reykjavíkur. Úr alrýminu er útgengt á svalir sem snúa til suðvesturs.
Eldhúsið er með miklu skápa- og vinnuplássi, stórri eyju og aðstöðu fyrir borðhald. Borðstofa og stofa tengjast eldhúsinu og mynda rúmgott og samhangandi alrými.
Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi. Hjónaherbergið er með fataherbergi og útgengi á stórar svalir. Hin tvö herbergin eru rúmgóð og björt og fataskápur er í öðru þeirra.
Baðherbergi efri hæðar er með baðkari, sturtu, salerni, handlaug og innréttingu. Skipulaginu hefur verið breytt frá upphaflegri teikningu.
Yfir hluta efri hæðar er mikið geymslupláss undir þaki sem ekki er skráð í fermetratölu eignarinnar. Aðgengi að því er um lúgur með niðurdraganlegum stigum, annars vegar úr fataherbergi hjónaherbergis og hins vegar úr öðru barnaherberginu.
Aukaíbúð:
Á neðri hæð er stúdíóíbúð með sérinngangi. Hún samanstendur af opnu eldhús-, stofu- og svefnrými ásamt baðherbergi. Hurðaropi milli hennar og aðalhluta hússins, sem sýnt er á teikningu, hefur verið lokað með léttum vegg.
Íbúðin er í útleigu og skilar uppgefnum leigutekjum. Nánari upplýsingar um leigusamning og leigutekjur koma fram í sölugögnum.
Garður og útisvæði:
Við húsið eru tvennar stórar svalir. Úr alrými efri hæðar er útgengt á svalir til suðvesturs og úr hjónaherbergi á aðrar stórar svalir. Úr herbergi og þvottahúsi á neðri hæð er útgengt í garð. Á útisvæði er gert ráð fyrir heitum potti. Lóð og útisvæði eru ófullgerð.
Bílskúr og bílaplan:
Bílskúrinn er 45,1 m². Innangengt er í hann úr aðalhluta hússins og úr bílskúrnum er jafnframt útgengt í garð. Bílaplan er fyrir framan húsið.
Húsið:
Húsið er steinsteypt, einangrað og klætt að utan. Gólfhiti er í öllu húsinu.
Staðsetning:
Úlfarsbraut 46 stendur við jaðar íbúðabyggðarinnar í Úlfarsárdal, með opin svæði og gönguleiðir í næsta nágrenni. Greið leið er inn og út úr hverfinu um Mímisbrunn og Lambhagaveg.
Í Úlfarsárdal er leik- og grunnskóli, sundlaug, íþróttaaðstaða og bókasafn. Stutt er í göngu- og hjólaleiðir og útivistarsvæðin við Úlfarsfell.
Makaskipti:
Makaskipti á minni eign koma til greina. Nánari upplýsingar fást hjá fasteignasala.
Mikilvægar upplýsingar:
Eignin er ekki fullkláruð. Lokaúttekt byggingarfulltrúa hefur ekki farið fram og eignin er skráð á byggingarstigi 3 og matsstigi 8. Seljandi mun ekki ljúka óloknum verkþáttum fyrir afhendingu.
Nánari upplýsingar um afhendingarástand eignarinnar, ólokna verkþætti og þau atriði sem kaupandi þarf að kynna sér koma fram í söluyfirliti og fylgigögnum eignarinnar. Kaupendum er ráðlagt að kynna sér gögnin vel og skoða eignina með byggingarfróðum aðila áður en kauptilboð er gert.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2019
45.1 m2
Fasteignanúmer
2328327
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
17.350.000 kr.

Myndir (57)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Gissurargata 3
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Gissurargata 3
Gissurargata 3
113 Reykjavík
364.1 m2
Einbýlishús
633
783 þ.kr./m2
285.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 31
251024_474_Vorbraut_TÓ arkitektar_01 FACADES.jpg
Skoða eignina Vorbraut 31
Vorbraut 31
210 Garðabær
252.3 m2
Raðhús
624
852 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 39
251024_474_Vorbraut_T_ arkitektar_03 INT.jpg
Skoða eignina Vorbraut 39
Vorbraut 39
210 Garðabær
270 m2
Raðhús
634
848 þ.kr./m2
229.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 33
1.jpg
Skoða eignina Vorbraut 33
Vorbraut 33
210 Garðabær
252.3 m2
Raðhús
624
852 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin