RE/MAX og Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu fallega, bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 2. hæð við Kirkjuvelli 5 í Hafnarfirði.
Eignin er samtals 88,2 fm og býður upp á rúmgóð og björt rými, tvö svefnherbergi, stórar svalir og þvottahús innan íbúðar. Sérgeymsla, 8,3 fm, er staðsett í sameign.
Eignin hefur fengið gott viðhald og hefur íbúðin sjálf nýlega verið máluð auk þess sem endurnýjað hefur verið parket og innihurðir.
Frábær staðsetning á Völlunum í Hafnarfirði, þar sem stutt er í alla helstu verslun og þjónustu. Grunnskóli, leikskóli og fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf er í nágrenninu.
Nánari upplýsingar um eignina veitir, Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali, gudrun@remax.is, sími 820-0490.Hér getur þú skoðað kíkt í heimsókn og skoðað þessa fallegu eign.
Nánari lýsing eignarForstofa: Parketlögð með góðum fataskápum sem ná upp í loft.
Eldhús: Falleg og rúmgóð innrétting með góðu skápaplássi, Vandaðar steinflísar eru á milli skápa. Granítboðplata í eldhúsi og eyju.
Stofa og borðstofa: Mjög rúmgott, opið og bjart rými með góðum gluggum. Útgengt er úr stofu á stórar og góðar svalir sem skapa skemmtilega framlengingu á íbúðinni.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru tvö og bæði með góðum fataskápum sem ná upp í loft. Parket er á gólfum.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf og búið baðkari/sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og innréttingu.
Sérsmíðuð granítborðplata með vaski á baðherbergi.Þvottahús: Þvottahús er innan íbúðar með vaski og borðplötu. Flísar eru á gólfi.
Sérgeymsla: um 7,9 fm, er staðsett í sameign. Þar er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Bílastæði: Næg sameiginleg bílastæði eru fyrir framan húsið.
Í sameiginlegu bílaplani er hleðslustöð frá ON.Viðhald og endurbætur- Eignin hefur fengið viðhald á undanförnum árum.
- Skipt var um þak sumarið 2023 og húsið sílanborið.
- Gluggar hafa nýlega verið málaðir að utan, suðaustan- og suðvestanmegin fyrir nokkrum árum.
- Íbúðin hefur nýlega verið máluð og parket og innihurðir endurnýjuð.
- Varmadæla er í húsinu fyrir neysluvatn og er heita neysluvatnið því ekki hitaveituvatn. ATHUGA!!
Húsið er steinað að utan og því viðhaldslítið. Aðkoma að húsinu og sameign er snyrtileg. Sameiginlegur garður er við húsið og lítill leikvöllur í næsta nágrenni. Virkt og gott húsfélag er í húsinu og að sögn eiganda eru góðir nágrannar og nánast allar íbúðir hússins í eigu íbúa.
Staðsetning; Kirkjuvellir 5 er vel staðsett eign á Völlunum í Hafnarfirði. Stutt er í skóla, leikskóla, verslun, þjónustu og fjölbreytta íþrótta- og útivistarmöguleika. Svæðið hentar því einstaklega vel fyrir fjölskyldur og þá sem vilja hafa helstu þjónustu innan seilingar.
Nánari upplýsingar um eignina veitir, Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali, gudrun@remax.is, sími 820-0490.Forsendur söluyfirlitsSöluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir eftir því sem unnt er að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir eða sjást ekki berum augum, svo sem lagnir, dren, skólp og þak.
SkoðunarskyldaÍ lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX bendir því væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.