Heimili fasteignasala kynnir Grundarstíg 7, gott einbýli á frábærum stað í miðborginni.
Fallegt 195,2 fm einbýlishús á 3 hæðum ásamt 41,2 fm bílskúr. 4-5 stór svefnherbergi. Húsið stendur á 419 fm eignalóð. Bílastæði á lóð.
Mikil tækifæri til verðmætaaukningar, aukin byggingarréttur á lóð fyrir einbýli allt að 120 fm.
Nánari upplýsingar gefur Sigridur Lind Eyglóardóttir lgf. sigridur.lind@heimili.is / 8994703
Lýsing eignar:
Miðhæð: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi. Rúmgott forstofuherbergi. Gangur með innbyggðu fatahengi, parket á gólfi. Snyrting með sturtu, nýlega endurnýjuð. Mjög rúmgott og bjart eldhús með fallegri innréttingu. Góður borðkrókur í viðbyggingu með útsýni yfir garðinn, útgangur er frá borðkrók út á skjólgóða verönd. Rúmgóð stofa og borðstofa með parketi á gólfi, steyptur teppalagður stigi er upp á efri hæðina frá forstofu.
Efri hæð: Komið er á stigapall með útgangi út á suðursvalir. Gott hjónaherbergi með skápum, parket á gólfi. Rúmgóður gangur með parketi á gólfi. 2 rúmgóð herbergi eru sitthvoru megin inn af gangi. Baðherbergi með baðkari, og flísar á gólfi.
Kjallari: Í kjallaranum er rúmgott herbergi, innaf því stór geymsla. Stórt þvottahús með vaski. Salerni er í kjallaranum. Þar er einnig rúmgóð geymsla með hillum. Í kjallara er ekki full lofthæð.
Bílskúr: Hellulögð innkeyrsla er að bílskúr sem stendur innst á lóð, gott bílastæði. Bílskúrinn er mjög rúmgóður (41,2 fm2) og er í dag nýttur sem vinnustofur. Hurð og gluggi eru á bæði skammhlið og langhlið.
Þar er bæði rafmagn og kalt vatn.
Garðurinn er gróinn og fallegur, með hellulögðum stígum og fjölbreyttum gróðri. Notaleg og skjólgóð aðstaða úti á tvískiptum palli fyrir utan eldhúsdyr.
Húsið stendur á 419 fm2 eignalóð. Fyrirliggjandi er samþykkt deiliskipulag fyrir byggingu á öðru íbúðarhúsi, kjallara og hæð, allt að 120 fm á lóðinni. Teikningar og byggingarleyfi liggur ekki fyrir.
Einnig er samþykkt deiliskipulag fyrir rishæð allt að 70 fm ofan á núverandi hús.
Nánari upplýsingar gefur Sigridur Lind Eyglóardóttir lgf. sigridur.lind@heimili.is / 8994703
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
101 | 243.8 | 140 | ||
113 | 196.6 | 125 | ||
104 | 190.4 | 125 | ||
110 | 201 | 118,9 | ||
112 | 185 | 129,9 |