Lind fasteignasala og Sigríður Guðbrandsdóttir, löggiltur fasteignasali kynnir í einkasölu, Beykidal 6, íbúð 105, 260 Reykjanesbæ.
Íbúðin er á jarðhæð með sérinngangi. Stærð eignar 70 fermetrar.
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning. Nánari lýsing:Forstofa : með flísum á gólfi og fataskáp. Innangengt í þvottahús frá forstofu.
Eldhús: með flísum á gólfi. Ljós innrétting þar sem gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Stofa : er björt og rúmgóð, með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á 13,7 fermetra hellulagðan sérafnotaflöt. Þar er möguleiki á að byggja pall.
Svefnherbergi : með parketi á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Baðherbergi : með flísum á gólfi og veggjum. Hvít innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og baðkar með sturtu.
Þvottahús/geymsla : með flísum á gólfi. Góð innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Möguleiki á að breyta þvottahúsi í herbergi.
Tvö bílastæði fylgja eigninni og eru þau staðsett fyrir framan íbúðina. Einnig er sameiginleg hjóla/vagnageymsla.
Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Guðbrandsdóttir löggiltur fasteignasali í sima 867-5854 eða á sigridur@fastlind.isStapaskóli, einn glæsilegasti leik- og grunnskóli landsins hefur tekið til starfa í þessu blómlega hverfi, steinsnar frá íbúðunum. Stapaskóli er heildstæður skóli, leikskóli grunnskóli og tónlistarskóli, frístundarskóli og félagsmiðstöð og mun fullbyggður skólinn rúma ríflega 600 nemendur. Íþróttahús (Ice Mar höllin) og sundlaug er byggt við skólann og hefur verið tekið í notkun. Um er að ræða skóla fyrir 2 ára og upp úr. Bókasafnið, matsalur, félagsaðstaða og sundlaug nýtast sem menningarmiðstöð fyrir hverfið eftir lokun skólans.
______________________________________________________________________
Allir kaupendur og selhjendur okkar fá Vildarkort Lindar.
Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma, SÝN og Securitas
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 3.800 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.