Fasteignaleitin
Skráð 17. sept. 2025
Deila eign
Deila

Sólheimar 25

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
89.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
67.900.000 kr.
Fermetraverð
758.659 kr./m2
Fasteignamat
62.300.000 kr.
Brunabótamat
51.050.000 kr.
Byggt 1962
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2021600
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
12
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
Óvitað
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Fóðraðar 2017
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Endurnýja að hluta
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar svalir
Upphitun
Hiti í loftplötu
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Lítilsháttar rakaskemmd við glugga í stofu.
RE/MAX og Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu fallega og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á frábærum stað að Sólheimum 25.

Samkvæmt HMS er birt flatarmál eignarinnar 89,5 fm, þar af er íbúðin 82,6 fm og geymslan 6,9 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, tvö svefnherbergi, stofu, baðherbergi og sér geymslu í sameign hússins.


Nánari lýsing:
Anddyri: Parket á gólfi. Fatahengi með hillum.
Svefnherbergi: Parket á gólfi. 
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Sturtuklefi, innrétting með handlaug og salerni. Gluggi í rýminu.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og fataskápur í rýminu og við inngang herbergisins. Útgengt út á svalir frá rýminu.  
Eldhús: Parket á gólfi. Falleg eldhúsinnrétting með eyju og góðu skápaplássi. Bakaraofn í vinnuhæð, háfur, helluborð, tenging fyir uppþvottavél og vaskur. Gluggi í rýminu.
Stofa/borðstofa:  Parket á gólfi. Í samliggjandi rými. Bjart og fallegt rými. Útgengt út á svalir sem snúa til suður.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús á efstu hæð hússins. Stórir gluggar með stórbrotnu útsýni yfir borgina.
Geymsla: Staðsett í sameign hússins. 6,9 fm.

Húsið og íbúðin hafa fengið gott viðhald í gegnum árin. Hér að neðan er að finna útlistun á helstu framkvæmdum síðustu ára:

2022 - 2025 - Parket íbúðar endurnýjað. Íbúðin máluð. Smíðaður nýr veggur í andyri. Rafmagn íbúðar endurnýjað að mestu leyti. Allt rafmagns innlagnaefni skipt út fyrir nýtt innlagnaefni. Snjall-heimastjórnunarkerfi frá Plejd. Hægt að stýra dimmanlegum ljósum í snjallsíma eða spjaldtölvu. Ethernet tengill settur upp bakvið sjónvarp.

Húsfélag: Í húsinu er mjög sterkt húsfélag sem hefur staðið sig frábærlega í viðhaldi hússins ásamt húsverði. Nýlega settar rafdrifnar hurðir í andyri, þak og þakkantur endurnýjað 2024, skipt um handriði á svölum 2022, hleðslustöðvar á bílastæði.

Húsið:
Húsið er teiknað af Guðmundi Kr. Guðmundssyni Arkitekt sem hefur fengið mikið lof fyrir fallega hönnun. Húsið er með 44 íbúum á 11 hæðum, auk kjallara og þakhæðar (12. hæð) þar sem er sameiginlegt þvottahús. Húsvarðaríbúð á 1. hæð er í eigu húsfélags og því sameign íbúðareigenda. Fundarherbergi í kjallara er nýtt fyrir húsfélagsfundi.

Annað:
Íbúðin er frábærlega vel staðsett í þessu vinsæla hverfi, en stutt er í skóla, leikskóla, útivist, leiksvæði og aðra þjónustu.

Allar frekari upplýsingar veitir:
Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, í síma 696 0226 eða thorsteinn@remax.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
04/01/202353.250.000 kr.55.500.000 kr.89.5 m2620.111 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
RE/MAX
http://www.remax.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kleppsvegur 118
Skoða eignina Kleppsvegur 118
Kleppsvegur 118
104 Reykjavík
82 m2
Fjölbýlishús
312
833 þ.kr./m2
68.300.000 kr.
Skoða eignina Álfheimar 16
Skoða eignina Álfheimar 16
Álfheimar 16
104 Reykjavík
70 m2
Fjölbýlishús
312
941 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Skoða eignina Barðavogur 22
Skoða eignina Barðavogur 22
Barðavogur 22
104 Reykjavík
78.8 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
824 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Stefnisvogur 40
Bílastæði
Skoða eignina Stefnisvogur 40
Stefnisvogur 40
104 Reykjavík
73.6 m2
Fjölbýlishús
211
936 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin