Baldur fasteignasali - Sími 450-0000 kynnir: í einkasölu bjarta og vel skipulagða tveggja herbergja íbúð með
sérinngangi og
aukinni lofthæð við Miklubraut 68, 105 Reykjavík, á eftirsóttum stað í Hlíðunum. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin
70,1 fermetrar, þar af er geymsla 7,3 fermetrar.
Um er að ræða fallega eign sem snýr öll til suðurs að grónum bakgarði hússins. Íbúðin skiptist í anddyri/gang, alrými með eldhúsi og stofu, rúmgott svefnherbergi, baðherbergi og garðskála með útgengi út í garð.
Nánari lýsing:Anddyri / gangur: Harðparket á gólfi og tvöfaldur fataskápur. Inngangur frá sameign en einnig er hægt að nota útgengi frá garði sem sérinngang.
Eldhús: Rúmgóð Ikea eldhúsinnrétting með góðu skápa- og vinnuplássi. Keramik vaskur, Gorenje helluborð og bakaraofn í vinnuhæð. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Stofa / alrými: Bjart og opið rými með góðri tengingu milli stofu, borðstofu og eldhúss. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi: Mjög rúmgott herbergi með tvöföldum fataskáp. Rennihurð er á milli herbergis og alrýmis.
Garðskáli: Gengið er úr svefnherbergi í garðskála með flísum á gólfi og þaðan út í bakgarð. Hægt er að nota þann inngang sem aðalinngang í íbúðarinnar.
Baðherbergi (endurnýjað 2022): Flísalagt í hólf og gólf. Vegghengt salerni, innrétting við vask með speglaskáp og sturta.
Annað: - Sérgeymsla í sameign
- Sameiginlegt þvottahús
- Gróinn bakgarður með hellulagðri stétt
- Dýrahald heimilt
- Íbúðin snýr öll í suður að garði
Staðsetning:Frábær staðsetning í Hlíðunum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, skóla og útivistarsvæði. Öskjuhlíð, miðbær Reykjavíkur og Háskólasvæðið eru í stuttu göngufæri.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000
Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Lúxus fasteignir - Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt