Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Bjarkardal 23, 260 Reykjanesbæ.
Íbúð merkt 101
Um er að ræða fallega 108,2 m2. fjögurra herbergja endaíbúð á jarðhæð.
Eignin skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi með þvottaaðstöðu og verönd.
Eignin er laus við kaupsamning.
Nánari lýsing:
Anddyri hefur flísar á gólfi og stóran fataskáp.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu björtu rými með parket á gólfi. Úr stofu er útgengi út á verönd
Eldhús hefur góða innréttingu, innbyggðum ísskáp, uppþvottavél og bakarofn, eldhúseyja með helluborði.
Svefnherbergin eru þrjú talsins, rúmgóð með parket á og fataskáp.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum, sturta, snyrtileg innrétting og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Gólfhiti er í eigninni.
Staðsetningin er virkilega góð, stutt í leik- og grunnskóla, sundlaug, líkamsrækt, bókasafn ofl.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050 eða á netfangið: es@es.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4%
ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr.
3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar
á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, skv. gjaldskrá.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.