Fasteignasalan TORG kynnir: Fallegt, bjart og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð á fallegri lóð og mjög vel staðsett. Það er að hluta upprunalegt en hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina, aðeins einn eigandi. Möguleiki er að stækka húsið. Í dag eru 3 svefnherbergi, en möguleiki er t.d. að breyta sjónvarpsherbergi í herbergi. Að auki er 1 herbergi/geymsla inn af þvottaherberginu. Eignin gæti losnað fljótt.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Rut Stanleysdóttir, löggiltur fasteignasali í gsm. 699-4610 eða siggarut@fstorg.is Nánari lýsing:Forstofa við aðalinngang: Komið er inn í forstofu með fatahengi og flísalögðu gólfi.
Inn af forstofu er góð miðja sem rýmir meðal annars sjónvarpsstofuna sem hægt væri að stúka af og breyta í auka svefnherbergi. Útgengt er á timburverönd frá sjónvarpsherberginu. Beint á móti forstofunni er stofa og borðstofa, eldhús á hægri hönd og svefnherbergisgangur á vinstri hönd.
Forstofa við eldhúsinngang: Komið er inn í forstofu með flísalögðu gólfi og fataskáp, úr henni er inngangur í eldhús, þvottaherbergi, búr og bílskúr.
Eldhús: Innrétting U-laga sem hefur verið endurnýjuð ásamt eldhústækjum. Ofn í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél. Góður borðkrókur við glugga, parket á gólfi. Inn af eldhúsi er komið inn í forstofu við eldhúsinngang.
Stofa/borðstofa: Eru rúmgóðar og bjartar. Arinn er í stofunni. Eitt þrep er frá borðstofu í stofuna. Parket á gólfi. Góðir gluggar sem veita góða birtu. Útgengt er út á timburverönd sem er að hluta yfirbyggð.
Aðalbaðherbergi: Hefur verið endurnýjað, vaskur, salerni, baðkar og veggskápur. Veggir, gólf og loft flísalagt.
Svefnherbergisgangur: 3 svefnherbergi. Parket er á gólfi og útgengt frá svefnherbergisgangi út á timburverönd sem er að hluta yfirbyggð.
Hjónaherbergi: Er með rúmgóðum fataskápum og parketi á gólfi. Inn af svefnherberginu er sér baðherbergi með sturtu.
Baðherbergi inn af hjónaherbergi: Flísalagt baðherbergi með vaski, salerni og sturtu. Opnanlegur gluggi.
Svefnherbergi: Eru bæði með parket á gólfi og fataskápum.
Þvottaherbergi: Er rúmgott, með innréttingu, vaski, lokuðum skápum og tengi fyrir þvottavél sem og aðstöðu fyrir þurrkara. Flísalagt gólf, útgengt í garð. Inn af þvottaherberginu er aukaherbergi/geymsla.
Búr: Lítið herbergi með hillum.
Bílskúr: Er með sjálfvirkri hurð, rafmagni og tengi fyrir vask.
Heimkeyrslan er upphituð.
Garður er afar fallegur og skjólgóður í góðri rækt.
Eignin er einstaklega vel skipulögð og vel staðsett á eftirsóttum stað í Garðabæ. Húsið er steinsnar frá íþróttasvæði Stjörnunnar og Flataskóla. Barnvænt hverfi.
Möguleiki er að stækka húsið. Nýtingarhlutfall hússins má vera allt að 0,35% af stærð lóðar. Nýtingarhlutfall er núna 0,22%. Hægt er að lesa nánar um skilmála inni á kortavefnum www.map.is/gardabaer undir deiliskipulag.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Rut Stanleysdóttir fasteignasali í gsm. 699-4610 eða siggarut@fstorg.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila,
en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og
ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.