DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 28. apríl 2025

Dalland 0

Jörð/LóðHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-271
166,000 m2
Verð
Tilboð
Fasteignamat
21.650.000 kr.
Mynd af Halldór Frímannsson
Halldór Frímannsson
Löggiltur fasteignasali
Fasteignanúmer
2081909
Húsgerð
Jörð/Lóð
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Kvöð / kvaðir
Kvöð frá Mosfellsbæ um að byggingarmagn fari ekki yfir 1500 m2 á jörðinni. 


JÖRÐ TIL SÖLU Í MOSFELLSBÆ – 16,6 ha þar af 6,1 ha deiliskipulagðir fyrir lögbýli.

Trausti fasteignasala og Halldór Frímannsson lgf. kynna til sölu jörð á friðsælum stað sunnan við Hafravatn, við Nesjavallaleið í Mosfellsbæ 16,6 hektara úr landi Dallands, þar af 6,1 ha með samþykktu deiliskipulagi fyrir lögbýlið Stekk. Gert er ráð fyrir að selja landið í heild sinni.

Stærð: 16,6 ha
Fasteignanr.: 208-1909
Landeignanr.: L123625

Deiliskipulag heimilar byggingu eftirfarandi:
Íbúðarhús á 2 hæðum, allt að 300 m²
Véla-, reið- og tamningaskemmu, allt að 800 m²
Hesthús eða gripahús, allt að 300 m²
Ylræktarhús, allt að 100 m²

Heildarbyggingarmagn: 1.500 m²
Fasteignamat 2026 kr. 21.650.000


Deiliskipulagið leggur áherslu á sjálfbæra matvælaframleiðslu, svo sem ræktun rótar- og garðávaxta, ylrækt og skógrækt til skjólmyndunar. Hentar einnig þeim sem vilja stunda hrossarækt eða annað húsdýrahald. Jafnframt er ætlunin með deiliskipilaginu að hefta frekari útbreiðslu lúpinu. 

Staðsetning býður uppá rólegt sveita umhverfi með borgina rétt hjá, náttúru, frið og fjölbreytta útivist, án þess að þurfa að fórna þægindum þéttbýlisins.Landið er að mestu hálf grónir melar þar sem lúpina hefur náð að dreifa sér. Engin mannvirki eru á landinu. 

Annað:  Fasteignaskattur af útihúsum og mannvirkjum á bújörðum sem tengd eru lanbúnaði, s.s. grasrækt, garðrækt, ylrækt, skógrækt og búfjárrækt sem talist geti búrekstur eða þáttur í búrekstri, er sá sami og af íbúðarhúsum, sbr. 2. gr. reglug. nr. 1160/2005 um fasteignaskatt. 

Áhugasamir eru hvattir til þess að kynna sér "Deiliskipulag fyrir landbúnaðarsvæði að Stekk, landspilda úr Dallandi (L123625)" inná kostasjá Mosfellsbæjar auglýst í Stjórnartíðindum 28. október 2024.  https://skipulagsaaetlanir.skipulagsstofnun.is/skipulagvefur/DisplayDoc.aspx?itemid=311ArAYZaEqV8RMv3zzEtA

Afhending: Við undirritun kaupsamnings.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Frímannsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6605312, tölvupóstur halldor@trausti.is.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (13)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skammbeinsstaðir 3
Heitur pottur
Skammbeinsstaðir 3
851 Hella
276.9 m2
Jörð/Lóð
332
683 þ.kr./m2
189.000.000 kr.
Skoða eignina Úugata 37
Skoða eignina Úugata 37
Úugata 37
270 Mosfellsbær
Jörð/Lóð
21.100.000 kr.
Skoða eignina Refsholt 60
Skoða eignina Refsholt 60
Refsholt 60
311 Borgarnes
110 m2
Jörð/Lóð
312
381 þ.kr./m2
41.900.000 kr.
Skoða eignina Pálmalundur
Skoða eignina Pálmalundur
Pálmalundur
531 Hvammstangi
71.4 m2
Jörð/Lóð
211
559 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin