Hraunhamar kynnir: Glæsilega fjögurra herbergja íbúð með svölum á annarri hæð á frábærum stað í Hamraneshverfinu í Hafnarfiði, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Íbúðirnar skilast fullbúnar með gólfefnum, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Til afhendingar við kaupsamning.
Íbúðin er fjögurra herbergja íbúð, skráð 108,3 fermetrar með geymslu. Auk þess fylgir stæði með í lokaðri bílageymslu.
# Tvö baðherbergi
# Suð-vestur svalir
# Sérbílastæði í lokaðri bílageymslu
Húsið er klætt að utan með álklæðningu, og ál/timbur gluggar.
Nánari lýsing skv. teikningu:
Forstofa með fataskáp.
Gott opið rými, þar sem eldhús og stofa eru samliggjandi.
Eldhús með smekklegri innréttingu frá HTH og vönduðum eldunartækjum.
Björt stofa og borðstofa og þaðan er útgengt á svalir sem snúa til suð-vesturs.
Tvö góð svefnherbergi með fataskápum.
Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum, flísalagt baðherbergi þar inn af með innréttingu, upphengdu salerni og sturtu.
Flísalagt baðherbergi með innréttingu, upphengdu salerni og sturtu, þar er þvottaaðstaða.
Sér geymsla í sameign.
Sér stæði í bílageymslu.
Áshamar 24 er hluti af klasabyggingu þar sem skemmtilegur garður mun tengja húsin saman.
Eykt ehf er byggingaraðili hússins sem er reynslumikið og traust byggingarfyrirtæki með áratuga reynslu.
Áshamar 24 verður byggt eftir ströngum eftirlitsstaðli Svansins.
Sjá frekari upplýsingar um Svansvottun nýbygginga með því að smella hér.
Kaupandi borgar skipulagsgjald þegar þess verður krafist sem er 0,3 % af væntu brunabótamati eignarinnar.
Bókið skoðun hjá sölumönnum Hraunhamars:
Glódís Helgadóttir, löggiltur fasteignasali s. 659-0510, glodis@hraunhamar.is
Valgerður Gissurardóttir löggiltur fasteignasali s.791-7500, vala@hraunhamar.is
Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.is
Helgi Jón Harðarson, sölust. s. 893-2233, helgi@hraunhamar.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í farabroddi í rúm 40 ár ! – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.