Valborg fasteignasala kynnir í einkasölu raðhús við Básbryggju 27, 110 Reykjavík.
Eignin er samtals 183,2 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrá Íslands.
Bílskúrinn er 30,5 m² en íbúðarhlutinn er 152,7 m²
Eignin er raðhús á þremur hæðum með, með þremur svefnherbergjum, þremur baðherbergjum og vinnuherbergi í risi.
Eignin er ekki fullkláruð að innan en flest til þess er til og fylgir með.
Sér afnotaflötur með grasi og hellum er vestan við húsið með útsýni að sjónum. Einnig eru svalir með útsýni að sjónum.Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Sjá staðsetningu hér:
Nánari lýsing:Forstofa: gengið er inn í forstofu vestan megin við húsið.
Þaðan er innangengt í bílskúrinn.
Bílskúrinn er 30,5m² Forstofuherbergi með baðherbergi er vinstra megin þegar gengið er inn.
Frá forstofu er stigi upp á aðra hæð.
Þar er rúmgóð
stofa með útgengt á svalir með útsýni að sjónum.Eldhús með innréttingu en nýtt helluborð, háfur og bakarofn frá
BOSCH fylgir með.Frá eldhúsi/stofu er
stigi upp á þriðju hæð.Þar er baðherbergi með baðkari og handklæðaofni. Baðherbergi er óinnréttað en inn af baðherbergi er þvottahús, gert ráð fyrir þvottavél og þurkara.
Svefnherbergin á efstu hæð eru tvö.Annað þeirra snýr að sjónum en hitt að bílaplani. Mikil lofthæð er í báðum herbergjum.
Svefnherbergi I er rúmgott með stiga upp á milliloft en þar gæti verið skrifstofurými eða leikherbergi.
Á myndum sjást ummerki um leka en viðgerð á því fór fram fyrir nokkrum árum og er að fullu lokið að sögn seljanda.
Svefnherbergi II er rúmgott og bjart með þakglugga.
Efri hæðin er án gólfefna en gegnheilt viðarparket er til á allt rýmið og fylgir með.
Einnig eru til mjög fallegar flísar á neðstu hæðina, sirka 27fm sem fylgja með.
Einnig fylgir með stál stigahandrið frá fyrstu og uppá þriðju hæð.
Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.