** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA ** Þórdís Björk Davíðsdóttur löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:Fallega og bjarta 2ja - 3ja herbergja 69,5 fm íbúð á annarri hæð á góðum stað miðsvæðis í Grafarvoginum. Íbúðin sem er 63,2 fm. skiptist í forstofu, svefnherbergi, eldhús opið til borðstofu og stofu, baðherbergi, suð/vestur svalir og þvottahús innan íbúðar. Sérgeymsla 6,3 fm. er staðsett í sameign. Bílastæði eru sameiginleg fyrir framan hús.
Snyrtileg og vel skipulögð eign miðsvæðis í Rimahverfinu. Grunnskóli og leikskóli í göngufæri og göngustígar liggja um allt hverfið. Stutt er í fjölbreytta verslun, þjónustu og afþreyingu í Spönginni og Egilshöll. Nánari lýsing:Forstofa er rúmgóð og með fataskáp, parket á gólfum.
Baðherbergið er snyrtilegt með hvítri innréttingu og sturtubaðkari. Flísar á gólfi og vegg að hluta.
Eldhús og stofa er í opnu rými sem er rúmgott og bjart með útgengt út á stórar og sólríkar svalir. Búið er að taka af stofunni rými fyrir
Auka herbergi og nýtist í dag sem gestaherbergi. Auðvelt er þó að opna inní stofuna aftur.
Eldhús er með hvítri snyrtilegri innréttingu, flísum á milli skápa (settar 2020), góðu vinnuplássi og flísum á gólfi lagðar 2020.
Inn af eldhúsi er sér
þvottahús með glugga og flísum á gólfi.
Hjónaherbergi er með góðum fataskápum og parketi á gólfum.
Sérgeymsla er staðsett í sameign ásamt
hjóla- og vagnageymslu.
Gólfefni íbúðar er plastparket og flísar á eldhúsi og votrýmum.
Um er að ræða snyrtilega og hlýlega íbúð í góðu fjölbýli. Húsið hefur fengið gott viðhald innan sem utan. Ástandsskýrsla var gerð af Verksýn 2018 og í kjölfar hennar var farið í múrviðgerðir að utan og húsið málað ásamt svalaveggjum og svalagólf máluð. Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat. Heimasíða RE/MAXGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: · Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk