ALLT fasteignasala, sími 5605500 kynnir í einkasölu:Bjarta og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð við Ásholt 40, 105 Reykjavík. Birt stærð er 63.4 fm. Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, svefnherbergi og baðherbergi. 6 fm sérgeymsla og stæði í bílageymslu fylgir eigninni.
Íbúðin er staðsett á 2. hæð í íbúðarkjarna við rætur miðbæjarins. Aðeins 4 íbúðir eru á stigaganginum. Sameiginlegur og vel gróinn garður fyrir allar íbúðir kjarnans sem er rólegur og aðeins aðgengilegur íbúum. Leiksvæði, verönd og bekkir eru til staðar í garðinum. Húsvörður er í húsinu, vel rekið húsfélag og öll sameign og samskipti milli nágranna til fyrirmyndar.
Nánari lýsing eignar:Stofa og eldhús eru í samliggjandi rými með ljósu parketi á gólfi. Í eldhúsi er ljós innrétting með viðarramma, dökkar flísar eru á milli skápa, eldavél er í eldhúseyju. Stofan er björt, með stórum gluggum og útgengt er á suðursvalir. Baðherbergi er flísalagt hólf og gólf, útbúið fallegri viðarinnréttingu, salerni, baðkar með innbyggðri sturtu, opnanlegum glugga og gólfhita. Svefnherbergi er með viðar fataskápum og parketi á gólfi.
Sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi er í kjallara, ásamt dekkja- og kerrugeymslu, hjólageymslu, bílakjallara og bílaþvottaaðstöðu.
Nánari upplýsingar veitir/veita:Hulda Rún Rúnarsdóttir Nemi til löggildingar, í síma 5605522, tölvupóstur hulda@allt.is.Bjarklind Þór Löggiltur fasteignasali, í síma 6905123, tölvupóstur
bjarklind@allt.is.
Með því að smella á hlekkinn hér að neðan getur þú nálgast söluyfirlit eignarinnar.
*Söluyfirlit* ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Víkurbraut 62, 240 Grindavík - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.500.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 50.000 auk vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.