Domusnova Borgarnesi og Sjöfn Hilmarsdóttir lögg.fasteignasali kynna: Lækjarhvamm 3, 370 Búðardal. Fjölskylduvænt, sex herbergja einbýlishús á einni hæð ásamt stakstæðum bílskúr. Húsið er einstaklega rúmgott og vel skipulagt og stendur á skjólgóðum stað með útsýni yfir Hvammsfjörð.
* Fyrirhugað fasteignamat 2027, kr. 52.400.000.-
Lækjarhvammur 3 er 173,3, fm. steypt einbýlishús á einni hæð að meðtöldum 39,6 fm stakstæðum bílskúr frá árinu 2008. Innra skipulagi hússins hefur verið frá breytt frá því upprunalegu, m.a. eldhús stækkað og bætt við herbergi. Eignin skiptist í forstofu, gestasalerni, stofu, eldhús, fimm herbergi, baðherbergi og þvottahús. Gróinn garður fyrir aftan hús, timburveröld og stórt malarplan sem rúmar marga bíla. Vel skipulagt og rúmgott hús sem hefur verið haldið vel við.
Nánari lýsing:
Forstofa: Fataskápur. Flísar á gólfi.
Gestasalerni: Gólfsalerni. Handlaug. Flísar á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt. Útgengt á timburverönd. Parket á gólfi.
Eldhús: L-laga viðarinnrétting með efri skápum og góðu vinnuplássi. Bakaraofn í vinnuhæð. Innbyggð uppþvottavél. Flísar á gólfi.
Herbergi: Fimm herbergi. Fataskápur í einu. Parket á gólfi.
Baðherbergi: viðarinnrétting með góðu skápaplássi. Nuddbaðkar/sturta. Upphengt salerni. Veggflísar. Flísar á gólfi.
Þvottahús: Útgengt að framan. Steypt gólf.
Bílskúr: Stakstæður bílskúr frá 2008. Geymsluloft að hluta. Tengi fyrir vatn. Rafmagn. Handvirk bílskúrshurð. Steypt gólf.
Lóðin er 705 fm., aðkoma að eignin er góð og næg bílastæði, garðurinn er snyrtilegur og vel gróin með limgerðum sem skapa gott skjól og næði.
Hér er fallegt einbýlishús sem hefur fengið gott viðhald og margt verið endurnýjað að innan sem og utan, m.a. húsið klætt að utan, skipt um þak, drenað fyrir ofan hús, skipt um hluta gólfefna, nýjar innihurðar, eldhús og baðherbergi endurnýjað, settur varmaskiptir og neyslulagnir endurnýjaðar, ljósleiðar tengdur inn í hús o.fl. Skipt hefur verið um einhver gler en gluggar og útihurðir er upprunalegt og komið á tíma. Áhugasömum er bent á að senda á netfangið sjofn@domusnova.is og fá söluyfirlit eignar sent þar sem nánari upplýsingar er að finna.
Búðardalur er þjónustukjarni Dalabyggðar og býður upp á alla helstu þjónustu, þar á meðal leikskóla, grunnskóla, verslun, sundlaug, heilsugæslu og fjölbreytta afþreyingu. Fölskylduvænt samfélag við Hvammsfjörð þar sem er mikil náttúrufegurð, rólegt umhverfi sem gerir staðinn að eftirsóttum búsetukosti fyrir fjölskyldur jafnt sem þá sem leita að meiri lífsgæðum utan stærri þéttbýliskjarna.
Nánari upplýsingar og/eða bóka skoðun:
Sjöfn Hilmarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.691 4591 / sjofn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is