Fasteignaleitin
Opið hús:17. des. kl 17:30-18:15
Skráð 16. des. 2025
Deila eign
Deila

Lautasmári 5

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
106.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
82.500.000 kr.
Fermetraverð
776.105 kr./m2
Fasteignamat
75.850.000 kr.
Brunabótamat
55.550.000 kr.
HL
Hreiðar Levý Guðmundsson
löggiltur fasteignasali
Byggt 1996
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2228043
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Hæðir í húsi
8
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
Í lagi að því best er vitað, upprunalegir, hús byggt 1997
Raflagnir
Í lagi að því best er vitað, upprunalegir, hús byggt 1997
Frárennslislagnir
Í lagi að því best er vitað, upprunalegir, hús byggt 1997
Gluggar / Gler
Í lagi að því best er vitað, upprunalegir, hús byggt 1997
Þak
Í lagi að því best er vitað, upprunalegir, hús byggt 1997
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
3,4
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Hreiðar Levý & Hlynur Bjarnason ásamt Betri Stofunni Fasteignasölu kynna góða og vel hannaða 106,3fm, 4ja herbergja íbúð á 5. hæð í lyftuhúsi að  Lautasmára 5, 201 Kópavogur. Eignin skiptist í forstofu, hol, 3 rúmgóð svefnherbergi (eitt nýtt sem sjónvarpsstofa í dag), baðherbergi, þvottahús innan íbúðar, eldhús, stofa, vestur svalir ásamt sérgeymslu í kjallara. Mjög snyrtileg sameign með hjóla og vagnageymslu á jarðhæð. Næg bílastæði á bílaplani með  og hleðsla fyrir rafmagnsbíla úti á plani. Næg bílastæði eru á sameiginlegu bílaplani á lóð. 4 sérmerkt stæði fyrir rafmagnsbíla með tveimur rafmagnshleðslustaurum með tengingu fyrir 4 bíla. Fallegt útsýni er úr íbúð til vesturs. Fasteignamat næsta árs er 80.750.000kr.

Frábær staðsetning með afar fjölbreytta verslun og þjónustu í nokkra mínútna göngufjarlægð, leik- og grunnskóla ásamt íþróttasvæði Breiðabliks. Miðsvæðis á stór Reykjavíkursvæðinu þar sem stutt er í stofnbrautir til allra átta. 

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý lögg. fasteignasala í síma 661-6021, hreidar@betristofan.is eða Hlyni Bjarnasyni lögg. fasteignasala í síma 697-9215, hlynur@betristofan.is

Nánari lýsing eignar:

Forstofa: Komið inn í forstofu með tvöfölldum fataskáp.
Hol: Tengir saman flest rými íbúðar.
Svefnherbergi I: Innaf holi. Rúmgott barnaherbergi með tvöfölldum fataskáp.
Svefnherbergi II: Innaf holi. Rúmgott. Nýtt í dag sem sjónvarpsstofa. Auðvelt að stækka herbergi með því að færa vegg (sjá mynd af teikningu í lok myndagallerýs).
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með sturtuklefa, baði og baðinnréttingu með neðri skápum, vaski, efri skáp og spegli fyrir ofan vsk með innbyggðri lýsingu fyrir ofan spegil.
Þvottahús: Innan íbúðar. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, með skolvask.
Eldhús: Innrétting með efri og neðri skápum, ofni í vinnuhæð og innbyggðu helluborði í eldhúsbekk. Aðstaða fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. Góður borðkrókur.
Stofa: Rúmgóð og björt með stórum gluggum til vesturs og útgengi á góðar vestur svalir. 
Svalir:
Svefnherbergi III: Innaf stofu með góðu skápaplássi.
Geymsla: 6,3fm sérgeymsla í kjallara.

Sameign: Afar snyrtileg sameign. Hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð. 
Lóð: Snyrtileg full frágengin lóð.
Bílastæði: Næg bílstæði á sameiginlegu bílaplani í kringum húsið. 4 sérmerkt bílastæði fyrir rafmagnshleðslu.

Eignin Lautasmári 5 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 222-8043, birt stærð 106.3 fm, þar af er sérgeymsla eignar merkt 0021 skráð 6,3fm.

Falleg og vel skipulögð eign í þessu vinsæla hverfi í Smárahverfinu í Kópavogi. Frábær staðsetning miðsvæðis á stór Reykjavíkursvæðinu þar sem stutt er í stofnvegi til allra átta. Fjölbreytt verslun og þjónusta allt í kring í göngufæri. Leik- og grunnskóla í göngufjarlægð ásamt íþróttasvæði Breiðabliks. Þá er stutt í fallegt útivistarsvæði í Kópavogsdalinum 

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is eða Hlynur Bjarnason löggiltur fasteignasali, í síma 697-9215, tölvupóstur hlynur@betristofan.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/12/201530.250.000 kr.33.700.000 kr.106.3 m2317.027 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kórsalir 1
Bílastæði
Opið hús:20. des. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Kórsalir 1
Kórsalir 1
201 Kópavogur
110.6 m2
Fjölbýlishús
413
768 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Bæjarlind 5
Bílastæði
Skoða eignina Bæjarlind 5
Bæjarlind 5
201 Kópavogur
87.4 m2
Fjölbýlishús
312
978 þ.kr./m2
85.500.000 kr.
Skoða eignina Funalind 7
Skoða eignina Funalind 7
Funalind 7
201 Kópavogur
109.5 m2
Fjölbýlishús
413
757 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Hlynsalir 1
Bílastæði
Skoða eignina Hlynsalir 1
Hlynsalir 1
201 Kópavogur
102.5 m2
Fjölbýlishús
312
770 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin