Fasteignasalan TORG Kynnir: Einstaklega fallega og vel skipulagða 3ja herbergja eign á 3. hæð (önnur hæð frá götu) með aukinni lofthæð og sérinngangi að Kársnesbraut 108. Marmari á borðum í eldhúsi, baðherbergi og sólbekkjum. Gólfhiti í allri eigninni og parketflísar. Innfelld blöndunartæki. Vandaðar innréttingar.Allar nánari upplýsingar veitir Gunnar Patrik Sigurðsson lgfs. í síma 822-9415 eða gunnar@fstorg.is / Hafliði Halldórsson lgfs. í síma 846-4960 eða haflidi@fstorg.is Nánari lýsing: Anddyri er rúmgótt með parketflísum á gólfi.
Stigi upp á hæð með fallegu teppi og gler handriði.
Alrými sem tengir saman eldhús, borðstofu og stofu með parketflísum á gólfi og rúmgóðum fataskáp fyrir yfirhafnir.
Stofa er björt, gólfsíðir gluggar, sólbekkir úr marmara, innfelld lýsing í kanti og lofti og yfirbyggðar svalir.
Eldhús er glæsilegt, sérsmíðuð eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, marmari á borðum og gylltum blöndunartækjum. Vönduð tæki sem telja bakaraofn, örbylgjuofn, helluborð, innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél.
Þvottahús/geymsla er inn af eldhúsi, lokað af með rennihurð.
Baðherbergi er einkar glæsilegt, flísalagt hólf í gólf, walk in sturta með gylltum blöndunartækjum og sturtugleri á miðju gólfi, stór handsmíðaður marmara vaskur með gylltum blöndunartækjum, spegill með baklýsingu og vegghengt salerni.
Hjónaherbergi rúmgott með góðum skápum, sólbekkir úr marmara og parketflísar á gólfi.
Svefnherbergi er gott með fínu skápaplássi, sólbekkir úr marmara og parketflísar á gólfi.
Allar nánari upplýsingar veitir Gunnar Patrik Sigurðsson lgfs. í síma 822-9415 eða gunnar@fstorg.is / Hafliði Halldórsson lgfs. í síma 846-4960 eða haflidi@fstorg.is Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr. 2.700.- kr. af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.