Borgir fasteignasala kynnir eignina Samtún 22, 105 Reykjavík, nánar tiltekið íbúðareign merkt 00-01, fastanúmer 200-9550 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Birt stærð eignar er 46.9 fm.
Um er að ræða vel skipulagða 2ja herbergja kjallaraíbúð með sér inngangi. Komið er inn í flísalagt anddyri, en þaðan gengið inn í er sameiginlegt þvottahús með íbúð efri hæðar og í rúmgóða geymslu. Þaðan er gengið inn í íbúðina sem rúmar
stofu, svefnherbergi, eldhús og baðherbergi.
Garður er skjólgóður, vel girtur af og gróinn.
Góð eign sem fyrstu kaup.Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Harðardóttir, Löggiltur fasteignasali, í síma 856-6486, tölvupóstur gudrun@borgir.is.
Bjarklind Þór, Löggiltur fasteignasali í síma 690-5123, tölvupóstur bjarklind@borgir.isNánari lýsing eignar:Forstofa: Komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu.
Gangur/Hol: Frá gangi er gengið inn í aðrar vistarverur íbúðar, harðparket er á gólfi.
Hjónaherbergi: Harðparket á gólfi, laus fataskápur getur fylgt með í kaupum.
Eldhús: Lítið en snyrtilegt, harðparket á gólfi, er með eldhúsinnréttingu og eldavél með keramikhelluborði. Innréttingin er komin til ára sinna, er upprunaleg að hluta.
Stofa: Björt með harðparket á gólfi og er rúmgóð miðað við stærð íbúðar.
Baðherbergi: Snyrtilegt, er flísalagt að mestu, með sturtu og handklæðaofni.
Þvottahús: Sameiginlegt með efri hæð og er gengið inn í það frá forstofu.
Húsgögnin geta fylgt eign við sölu.
Eignin getur verið laus í byrjun janúar.
Frábær staðsetning á rólegum og eftirsóttum stað í nálægt miðbænum, stutt í alla helstu þjónustu, banka, kaffihús, verslanir, þá er hún líka í göngufæri við miðbæinn og opið svæði í Laugardalnum.