Fasteignasalan TORG og Helgi Jónsson lgfs 780-2700 kynna :
Glæsileg 129,5fm þriggja herbergja íbúð á fjórðu (efstu hæð) ásamt stæði í lokaðri bílageymslu. Mikil lofthæð og mjög stórir gluggar sem hleypa mikilli birtu inn í alrýmið. Eignin skiptist í : forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, tvö rúmgóð svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi, gestasalerni, þvottahús, geymslu í kjallara ásamt stæði í bílageymslu. Húsið er fyrir 50 ára og eldri. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is ATH. seljandi skoðar skipti á eign á stór Reykjavíkursvæðinu. Bókið einkaskoðun á Helgi@fstorg.is
NÁNARI LÝSING : Forstofa með góðu skápaplássi, parket á gólfi.
Gestasalerni með nýlegri innréttingu, flísar á gólfi.
Eldhús með fallegi viðarinnréttingu frá Brúnás ásamt nýjum tækjum frá AEG. Uppþvottavél fylgir. Flísar á milli skápa.
Stofa/Borðstofa er mjög rúmgóð og björt með mikilli lofthæð með stórum gluggum í austurs með fallegu útsýni.
Þvottahús er innaf eldhúsi með innréttingu með stórum skápum og skolvaski, flísar á gólfi.
Hjónaherbergi mjög rúmgott með parketi á gólfi, innangengt inn í fataherbergi og barðherbergi.
Svefnherbergi er með nýrri rennihurð frá RÖKKUR DYFA/NEW YORK með gleri sem hleypir birtu fram í holið. Þetta herbergi gæti nýst sem heimaskrifstofa, sjónvarpsrými eða gestaherbergi, útgengt út yfirbyggðar vestur svalir með hitara.
Baðherbergi með sturtu, innrétting við vask, flísar á gólfi og veggjum.
Geymsla er í kjallara hússins og er hún 9,7fm með góðum hillum.
Stæði í bílakjallara er vel staðsett með hleðslustöð fyrir rafbíla. Merkt nr. 18. Tvær innkeyrsluhurðir eru á bílakjallarnum.
Sameign er mjög snyrtileg og vel um gengin. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Mjög góð staðsetning með nægum bílastæðum, stutt í alla þjónustu og t.d. stutt í margskonar þjónustu í Jónshúsi. Einnig er stutt á ylströndina og í hverfinu eru góðir göngustígar meðfram ströndinni. Allar innréttingar sér smíðaðar frá Brúnás. Húsið var byggt af Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars (BYGGehf) árið 2006.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is