Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Jóninnuhagi 4 íbúð 203 - Nýleg 4ra herbergja íbúð með sér inngangi á efri hæð í vesturenda í litlu fjölbýlishúsi syðst í Hagahverfi - stærð 86,8 m²
- Fallegt útsýni er úr íbúðinni.
- Vandaðar innréttingar frá GKS, svartar plastlagðar, Nero oak.
- Hvítar innihurðar.
- Innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél fylgja með við sölu eignar.
- Hljóðdempandi plötur í öllum loftum íbúðar nema baðherbergi.
- Húsið er steypt og var íbúðin tekin í notkun árið 2022.Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sér geymslu.Sameiginlegt tæknirými er undir stigapallinum.
Forstofa og gangur eru með ljósu harðparketi á gólfi og svörtu opnu fatahengi með skúffu og led baklýsingu.
Eldhús, vönduð L-laga svört plastlögð innrétting (Nero oak) með grárri borðplötu og svörtum vask. Mjúklokun er á skúffum og skápum. Uppþvottavél og ísskápur með frysti eru innbyggð í innréttingu og fylgja með við sölu eignar.
Stofa og eldhús eru í opnu rými þar sem ljóst harðparket er á gólfi, gluggar til tveggja átta og rennihurð út á steyptar suður svalir, skráðar 7,6 m² að stærð.
Hjónaherbergi er með ljósu harðparketi á gólfi og hvítum þreföldum fataskáp. Stærð svefnherbergis er skv. teikningum 11,9 m².
Svefnherbergin eru tvö, bæði með ljósu harðparketi á gólfi. Annað herbergið er með ljósan tvöfaldan fataskáp. Stærð svefnherbergja er skv. teikningum 8,7 m².
Baðherbergi er með gráum flísum á gólfi og hluta veggja, svartri plastlagðri innréttingu og speglaskáp, upphengdu wc og walk-in sturtu. Stæði er í innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Sér geymsla fylgir íbúðinni og er hún á sömu hæð og skráð 5,3 m² að stærð
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.