Fasteignaleitin
Skráð 15. apríl 2025
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
112 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
70.900.000 kr.
Fermetraverð
633.036 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
100150425
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Svalir
Góð verönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ Á LAS COLINAS GOLFVELLINUM*

FRÁBÆR KAUP.
Vandað og fallegt einbýlishús á einni hæð á frábærum stað í lokuðum botlanga í Encina hverfinu á Las Colinas golfvellinum. Fallegt gróið umhverfi, mjög prívat staðsetning þar sem hægt er að njóta lífsins í ró og næði. Stór einkagarður og aðgangur að góðum sundlaugargarði, sem er sameiginlegur með nokkrum húsum í kring. 
Las Colinas golfsvæðið hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu og er því hér um einstakt tækifæri að eignast vandað og gott hús á þessum vinsæla stað á frábæru verði. Um 1 klst. akstur suður af Alicante.
GOTT SKIPULAG,  þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, eldhús opið við borðstofu. Hátt er til lofts í stofunni, sem gefur góða rýmistilfinningu. Notalegur arinn í stofunni. Stór sólverönd framan við húsið sem hægt er að opna vel út í garðinn, sem snýr í suður og vestur.
Frábær sólbaðsaðstaða bæði í garðinum og í notalegum sameiginlegum sundlaugargarði.
Einstakt gróið umhverfi, með allt það besta sem Las Colinas hefur upp á að bjóða rétt við þröskuldinn.  Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.

Allar upplýsingar gefa
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is. 00354 893 2495. 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. berta@spanareignir.is.  0034 615 112 869. 
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. karl@spanareignir.is. 00354  777 4277.

Nánari lýsing:


Gott flæði er í húsinu. Rúmgóð stofa og borðstofa í opnu rými, vel tengt opnu eldhúsi. Útgengi út i bakgarð frá eldhúsinu. Þrjú svefnherbergi og tvö  baðherbergi og er annað baðherbergið tengt master svefnherberginu. Þaðan er útgengi út í garð.

Húsið er mjög prívat og vel staðsett í fallegu grónu umhverfi. Garðurinn er stór og hægt að setja einkasundlaug.

Stæði fyrir tvo bíla inni á lokaðri lóð.

Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbb á Campoamor ströndinni. Nýtt spa og líkamsræktarstöð, tennis, sameiginlegur sundlaugargarður ofl. Algjör lúxus fyrir vandláta.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d.   La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor þar sem íbúar Las Colinas hafa aðgang að einkastrandklúbb. Ca. 10-15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða góða eign á frábærum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum.

Verð 489.000 evrur  + kostn. (70.900.000 ISK + kostn,  gengi 1Evra=145ISK)

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir.
Húsið er í endursölu, en hefur fengið gott viðhald og er í góðu ástandi.
Húsið selst með húsgögnum og húsbúnaði.

Hægt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðu okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: sér garður, sameiginlegur sundlaugargarður, air con,  golf, 
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
100150425

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Spánn - Costa Blanca
113 m2
Einbýlishús
423
602 þ.kr./m2
68.000.000 kr.
Skoða eignina Spánn-La Finca Resort Raðhús
Spánn-la Finca Resort Raðhús
Spánn - Costa Blanca
106.5 m2
Parhús
423
642 þ.kr./m2
68.400.000 kr.
Skoða eignina Spánn-La Finca Resort Raðhús
Spánn-la Finca Resort Raðhús
Spánn - Costa Blanca
106.5 m2
Parhús
423
642 þ.kr./m2
68.400.000 kr.
Skoða eignina Spánn-La Finca Resort Raðhús
Spánn-la Finca Resort Raðhús
Spánn - Costa Blanca
106.5 m2
Parhús
423
642 þ.kr./m2
68.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin