Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:
Suðurgata 4, íbúð 203, 230 ReykjanesbærTveggja herbergja íbúð á annarri hæð við Suðurgötu 4A í Keflavík, í
fjölbýlishúsi fyrir 55 ára og eldri. Frá Suðurgötu er gengið inn á sömu hæð og íbúðin er staðsett á. Íbúðin skiptist í stofu og borðstofu, eldhús, eitt svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Frá stofu er útgengt á yfirbyggðar svalir sem snúa að bakgarðinum. Sérgeymsla og merkt bílastæði fylgja eigninni og íbúar hafa aðgang að sameiginlegum sal við Suðurgötu 8.
Eignin er tóm og laus við kaupsamning.Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun. Sýnum samdægurs!Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð 68,3 m², merkt 01-0203. Húsið er byggt árið 1992. Fastanúmer eignarinnar er 209-0633. Eigninni fylgja tilheyrandi sameignarréttindi samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu.Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa er með fataskáp við inngang.
Eldhús er með viðarlitaðri innréttingu með efri og neðri skápum, flísum á milli skápa, eldavél með helluborði og háfi.
Stofa og
borðstofa eru samliggjandi rými með útgengi á yfirbyggðar svalir sem snúa að bakgarði.
Svefnherbergi er eitt í íbúðinni með góðum fataskáp.
Baðherbergi er með viðarlitaðri innréttingu, vaski, salerni og sturtu með glerskilrúmi. Flísar eru á gólfi og veggjum.
Þvottahús er innan íbúðar með hillum.
Gólfefni er vínylparket á meginrýmum íbúðarinnar, flísar á baðherbergi og málað gólf á þvottahúsi.
Svalir eru yfirbyggðar og snúa að bakgarði. Yfirborð svalagólfs er slitið og flögnun er á yfirborðsefni á köflum.
Geymsla og sameignEigninni fylgir sérmerkt geymsla á 1. hæð hússins (kjallara). Sameiginlegur salur er á 4. hæð að Suðurgötu 8 sem íbúar hafa aðgang að.
ByggingarlýsingHúsið er steinsteypt fjölbýlishús, byggt árið 1992. Þak er klætt bárujárni og gluggar eru úr timbri.
Lóð og aðkomaAðkoma að húsinu er frá Suðurgötu. Eigninni fylgir
sérmerkt bílastæði.Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.isErtu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00