Háborg fasteignasala og Þórunn Pálsdóttir lgf kynna einstaklega heillandi og glæsilega hannað einbýli á besta stað neðst í Stekkjarhverfi í Breiðholti. 18,3 fm bílskúr og 3ja herbergja aukaíbúð í kjallara. Arkitekt hússins er Þorsteinn Gunnarsson sem nýlega var gerður að heiðursfélaga í Arkitektafélagi Íslands. Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og thorunn@haborg.is Húsið stendur á gróinni 862 fm lóð við grænt svæði og með frábæru útsýni yfir Elliðaárdal, til fjalla og sjávar. Á efri hæð er hjónasvíta með baðherbergi, 3 barnaherbergi, baðherbergi, eldhús, góðar stofur og bílskúr. Á neðri hæð er þvottahús, mjög góðar geymslur og aukaíbúð með sérinngangi. Húsið rammar inn stóran skjólgóðan hellulagðan pall með útgengi bæði úr stofu og hjónaherbergi. Nánari lýsing: Gengið er inn á austurhlið hússins. Fyrst er þvottahúsinngangur í rými með skemmtilegum innréttingum og skolvaski. Það tengist svefnherbergisgangi þar sem strax á vinstri hönd er falleg hjónasvíta með baðherbergi, góðum skápum og útgengi á pallinn. Næst eru tvö góð barnaherbergi sem snúa út á pallinn sem er umlukinn fallegum gróðri. Á móti þeim er gott flísalagt baðherbergi með sturtu og stigarými (merkt geymsla á teikningu) þar sem hringstigi liggur niður í kjallara þar sem er stórt þvottahús og miklar geymslur sem nýttar eru með efri hæðinni. Á austurhlið hússins er næst er aðalinngangurinn. Komið er veglega forstofu með góðum skápum. Inn af henni er barnaherbergi ( merkt húsbóndaherbergi á teikningu). Næst er eldhús með góðu vinnuplássi og hlýlegum eldhúskrók. Það tengist sérlega heillandi samliggjandi holi, borðstofu og innst er hálflokuð stofa. Stórir gluggafletir með rennihurðum tengja borðstofuna og stofuna við skjólgóðan pallinn. Eldhús, stofa og "húsbóndaherbergi" eru með glæsilega útsýnisglugga til norðurs.
Á norðurhlið er sérinngangur í 3ja herbergja aukaíbúð . Komið er í forstofu og inn af henni er baðherbergi með hornbaðkeri. Úr forstofu er gengið í rúmgott eldhús með þvottaaðstöðu og þaðan í stofu. Inn af stofunni eru tvö góð svefnherbergi, annað með glugga til vesturs og hitt til norðurs
Birt flatarmál hússins er 371,1 fm þar af er bílskúr 18,2 fm og íbúðarfermetrar á efri hæð 167,4. Þá er birt flatarmál kjallara 185,7 fm en inni í því virðist vera allt kjallararými þar með talin geymsla undir bílskúr og geymslur inn af þvottahúsi sem eru allar með lítilli lofthæð, en almennt er lofthæð í kjallaranum í kringum 2,20m
Innréttingar og gólfefni eru að mestu upprunalegar sem gefur húsinu einstaklega heillandi skandinavískt yfirbragð frá 8.áratugnum á sama tíma og svartir gluggar gefa nútímalegt yfirbragð. Frábærlega staðsett hönnunarperla eftir Þorstein Gunnarsson þar sem einstakt flæði er á milli inni og útirýma. Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og thorunn@haborg.is

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.