Fasteignaleitin
Skráð 5. nóv. 2025
Deila eign
Deila

Bauganes 29

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
265 m2
8 Herb.
6 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
169.700.000 kr.
Fermetraverð
640.377 kr./m2
Fasteignamat
122.150.000 kr.
Brunabótamat
86.950.000 kr.
Mynd af Ásdís Ósk Valsdóttir
Ásdís Ósk Valsdóttir
Byggt 1936
Þvottahús
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2029492
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
1
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

OPIÐ HÚS FELLUR ÞVÍ MIÐUR NIÐUR VEGNA VEIKINDA

Fallegt einbýlishús með aukaíbúð við Bauganes 29, 102 Reykjavík. Rúmgott fjölskylduhús með mörgum svefnherbergjum og traustum leigutekjum. Húsið er skráð 265,3fm og þar af er bílskúrinn 22,4fm og aukaíbúð í kjallara um 60fm. Húsið stendur innst í litlum botnlanga með góðum garði og tveimur bílastæðum inni á lóð. 

FASTEIGNAMAT 2026 VERÐUR 132.350.000 KR.

Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign. 

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA MYNDBAND AF EIGNINNI

Smelltu hér til að skoða teikningar af eigninni

Húsið skiptist í hæð, ris og kjallara. Komið er inn í rúmgóða forstofu þaðan sem innangengt er á gestaklósett. Úr forstofu er gengið upp nokkrar tröppur á bjarta aðalhæð þar sem eru rúmgóð stofa/borðstofa, stórt eldhús og eitt herbergi. Úr eldhúsi er gengið beint út á stóran suðurpall og þaðan niður á neðri pall með heitum potti og svo beint í garðinn. 

Gengið er upp stiga í risið og þar er rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum, 3 barnaherbergi og baðherbergi með baðkari og sturtu. Úr einu herberginu er útgengt á svalir til suðurs.

Af aðalhæð er gengið um stiga í kjallara þar sem er þvottahús og tvær geymslur.

Í kjallara er svo aukaíbúð með sérinngangi sem er í útleigu. Hægt væri að opna inn í íbúðina þannig að innangengt væri úr þvottahúsi. Íbúðin skiptist í eldhús, stofu, svefnherbergi og baðherbergi með sturtu.

 Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina og er í góðu ástandi. Skipt var um þak 2022 og húsið málað að utan. Sama ár var eldhús endurnýjað í kjallaraíbúð og gólfefni endurnýjuð (harðparket) . Fyrri eigendur dýpkuðu kjallara 2006 og þá voru allar lagnir undir húsinu og frá því til götu endurnýjaðar. 

 Skerjafjörður er rólegt og fjölskylduvænt hverfi á góðum stað,  „ eins og að búa í sveit en samt svo stutt í miðbæinn“.

 Í götunni er leikskóli og skólabíll gengur þaðan í Melaskóla. Strætó nr. 12 gengur á 10-15 mínútna fresti með góða tengingu við Hagaskóla, Háskólasvæðið og niður í bæ. . Örstutt er niður á göngustíg meðfram sjónum. Fimmtán mín gangur er út í Nauthólsvík og í Öskjuhlíðina sem er frábært útivistarsvæði, ekki síst á veturna. Í Nauthólsvík eru tvö kaffihús og svo pottar og baðaðstaða, mikið notað fyrir sjósund, auk ylstrandarinnar. Paradís á góðum sumardegi. Til vesturs nær stígurinn alveg út á Seltjarnarnes. 20-30 min gangur (10min á hjóli, 5min í bíl) er í Vesturbæjarlaug, Kaffihús Vesturbæjar, bakarí og Melabúðina. Sama með KR. Grandasvæðið er einnig innan seilingar með allri sinni þjónustu, verslunum og veitingastöðum. 

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402

Á hvað eru sambærilegar íbúðir að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir þinglýsta kaupsamninga frá 2006 
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign. 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
03/05/201782.050.000 kr.77.000.000 kr.265.3 m2290.237 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Valshlíð 16
Bílastæði
Skoða eignina Valshlíð 16
Valshlíð 16
102 Reykjavík
217 m2
Fjölbýlishús
523
747 þ.kr./m2
162.000.000 kr.
Skoða eignina Vættaborgir 23
Bílskúr
Skoða eignina Vættaborgir 23
Vættaborgir 23
112 Reykjavík
206 m2
Einbýlishús
624
898 þ.kr./m2
184.900.000 kr.
Skoða eignina Bröndukvísl 11
Skoða eignina Bröndukvísl 11
Bröndukvísl 11
110 Reykjavík
233.5 m2
Einbýlishús
725
724 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Vættaborgir 46
Opið hús:09. nóv. kl 14:00-14:30
Skoða eignina Vættaborgir 46
Vættaborgir 46
112 Reykjavík
223 m2
Parhús
524
708 þ.kr./m2
157.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin